Vá hvað það eru nokkrir hressir hérna
Milljón mans horfðu á mig járnaðann út á hafnarfjarðarvegi og það er ekki eitthvað sem ég kæri mig um!
Sé ekki minnst á að það sé gert fyrir framan barnið mitt og það að við séum settir í sitthvorn bíllinn er auðvitað það al heimskasta sem þessir snillingar geta gert
Ég hef ekki sett eitt né neitt í skottið á þessum bíl því hann stóð í ca hálfann mánuð fyrir utan heima með sprungið dekk og þar af leiðandi ekki í notkun!
Og ég hef aldrei tengst vopnum á nokkrn hátt.
Smkvæmt varðstjóra í dag þá var þetta meistaraverk ríkislögreglustjóra og fengu þeir dómsútskurð fyrir nokkrum dögum um að leita í bílnum og það mátti bara stoppa hann í akstri enn ekki koma heim að leita í honum
Í gær dag hringdi konan mín upp á stöð því hún og nágrannar tóku eftir því að það komu löggubílar akandi götuna nokkrumsinnum á dag,Hún spurði hvern þeir væru að vakta og hvort við þyrftum að hafa áhyggur af einhverjum út af börnunum enn nei nei það er ekkert í gangi
Og það að guttinn er enn að tala um þetta og spyrja hvort vonda löggann hefði lamið mig með kylfunni og að hann hafi verið hræddur um að löggann mundi handjárna hann líka OG AFHVERJU VAR LÖGGANN AÐ GERA ÞETTA gerir mig bandbrjálaðann og ég hlusta ekki á svona kjaftæði að þessir HÁLFVITAR hafi verið að vinna vinnu sína því það voru þeir svo sannarlega ekki að gera og ég kalla þá bara því sem mér finnst um þá..... Sem er *ritskoðað*!!!
Og þetta fer alla leið,Fæ mér lögfræðing á mánudaginn og ég mun finna út hver kom þessu að stað.
Og þið sem eruð að reyna að verja þessa *ritskoðað* reynið að útskýra fyrir 4 ára barni hversvegna þið voruð stoppaðir á ísrúntinum með 4 löggubílum og þú handjárnaður og það hafi verið að leita að vopnum hjá pabba....Gangi ykkur vel!!!