by bebecar » Wed 13. Aug 2003 10:56
Lexus IS200 er máttlaus.
En það er nú bara kjaftæði að hann sé eins og hver önnur japönsk dós að innan. Hann er mun frumlegri og með miklu vandaðri innréttingu.
Sem dæmi má nefna að mælaborðið líkist meira mælaborði í motorhjóli en bíl, stýrið er frábært og stungna leðrið í sætunum er mjög fallegt og vel saumað. Allir takkar í bílnum, lýsing og slíkt er líka glæsilegt ásamt smart gírhnúð úr áli.
Benz og BMW í dag eru hinsvegar mjög óspennandi að innan, reyndar eru nýju bimmarnir að bæta úr þessu með nýju sjöunni, Z4 og svo nýju fimmunni.
Benz er ennþá frekar dull að innan, en ágætlega vandaður.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road