X-ið, Skonrokk og Stjarnan hætt :(

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby jonthor » Thu 13. Jan 2005 21:54

Dr. E31 wrote:Tekið af www.mbl.is

Ný útvarpsstöð í loftið á morgun
Ný útvarpsstöð, sem nefnist X-fm, mun hefja útsendingar á hádegi á morgun á tíðninni 91,9. Matthías Már Magnússon, dagskrárstjóri stöðvarinnar segir að Pýrit fjölmiðlun muni standa að rekstri hennar. Auk hans muni útvarpsmennirnir Freysi og Búi, sem unnið hafa á útvarpsstöðinni X-inu, starfa á nýju stöðinni.

Matthías segir að ákvörðunin um að stofna stöðina hafi verið tekin eftir að Íslenska útvarpsfélagið ákvað í gær að loka þremur útvarpsstöðvum, Skonrokki, Stjörnunni og X-inu. Hann segir að á nýju stöðinni standi til að leika rokk og ról og alla nýjustu og bestu rokktónlistina, íslenska sem erlenda.


http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1120526


NÁKVÆMLEGA!!!
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby Djofullinn » Thu 13. Jan 2005 23:25

Þetta er náttúrulega BARA ömurlegt! En mjög flott með nýju stöðina ;)
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Haffi » Thu 13. Jan 2005 23:27

það er vonandi að þeir spili ekki þetta hlandblauta háskóla rokk sem að x-ið spilað aðeins of mikið :roll:
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Jón Ragnar » Fri 14. Jan 2005 12:10

Fá feitt kudos fyrir að gera þetta svona fljótt :)

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 41 guests