Bmw 525i 09.92 - ef ekki sá fallegasti

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

Postby Guest » Sun 12. Dec 2004 22:32

Guest
 

Postby jens » Sun 12. Dec 2004 22:34

Glæsilegur bíll.

Image
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Bjarki » Mon 13. Dec 2004 00:04

O.Johnson wrote:Ef það hefur aldrei verið skipt um tímakeðju á þessum 200þ.km þá myndi ég fara að hugsa um það.
Ábyggilega kominn tími eða stutt í hann.


Ég hef aldrei lesið eða heyrt um að það þyrfti að skipta um tímakeðju og strekkjara í m50 um eða í 200þkm. Leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby oskard » Mon 13. Dec 2004 00:23

Mig minnir nú að BMW segi að maður eigi að "athuga" keðjuna í 250þús kílómetrum :)
oskard
 

Postby O.Johnson » Mon 13. Dec 2004 00:36

Það er greinilegt að BMW eru öruggir með sína hönnun.
Það hlítur að vera að það sé einhver km staða sem ráðlagt er að skipta um keðju.
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby oskard » Mon 13. Dec 2004 00:42

Held að BMW segi að keðjuna þurfi aldrei að skipta um bara fylgjast með að það sé í lagi með strekkjarann...
oskard
 

Postby redman » Tue 14. Dec 2004 00:28

Er búinn að bæta við smotterí við hann hér og þar. Skipt um stefnuljós (hvít), M mottur, chrome line gírhnúði og massa mikið af bóni : )
E34 525i ´92-með öllu
Primera 2.0eGt´92 4x4
User avatar
redman
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 20
Joined: Thu 05. Aug 2004 10:14
Location: Reykjavík

Re: Bmw 525i 09.92 - ef ekki sá fallegasti- SELDUR

Postby redman » Tue 21. Dec 2004 08:34

Anonymous wrote:Til sölu BMW 525i
Kom af færibandinu 14.09.1992
Sterlingsilber Metallic að utan (silfursans) og svart leður að innan. Beinskiptur, ekinn 194þkm, skoðaður án athugasemda ’05. Ástand er vægast sagt mjög gott! Góð þjónustubók er í bílnum. Bíllinn er innfluttur frá Þýskalandi í vor. Fyrri eigendur eru fjórir. Fyrst BMW en þeir áttu bíllinn í tæpt ár útskýrir væntanlega hversu mikill og skemmtilegur aukabúnaður er í bílnum. Svo maður fæddur ’59 í tæp 4 ár næst maður fæddur ’46 í rétt rúmt ár og svo að lokum maður fæddur ’39 síðan ’98 þ.e. 5 ár. Þessi eigendaferill útskýrir gott ástand ásamt góðu viðhaldi.
Beinskiptur M50 mótor 192 hestöfl, eyðir ekki of miklu en er mjög sprækur. Innanbæjar er hann að eyða eitthvað í kringum 13-14 allt eftir aksturslagi en fer undir 10 í íslenskum utanbæjarakstri. Undir bílnum eru tveggja hluta 17”BBS felgur framleiddar fyrir BMW (style 5), það flottasta undir þennan bíl að mínu mati, dekkin eru mjög nýleg. Með bílnum fylgja svo fjórar 15” felgur líka framleiddar af BBS fyrir BMW fínar felgur á þeim eru Goodyear nelgd vetrardekk.

Svona var bíllinn afgreiddur frá BMW:
Læst drif 25%
Rafmagn í stýri
Upphitaðir vatnsspíssar fyrir framrúðu
Shadow Line þ.e. ekkert króm nema í nýrunum
Rafstýrð topplúga
Rafmagn í rúðum allan hringinn
Sóltjald í afturrúðu
Rafmagn í sætum frammí
Niðurfellanleg aftursæti (algjör snilld!)
Sportsæti fyrir ökumann og farþega með armpúðum (svart leður)
Hiti í sætum fyrir ökumann og farþega
Höfðupúðar að aftan
Hreinsikerfi á framljós og kastara þ.e. sprautuspíssar
Hæðarstilling á aðalljós
Kastarar
Sjálfvirk miðstöð með loftkælingu þ.e. Klimatronic
BoardComputer með takka í stefnuljósarofa þ.e. stór aksturstölva
Inniljósapakki þ.e. kortaljós 2 framí og 2 afturí
12v tengi í hanskahólfi
BMW SoundSystem 10 hátalarar og magnari í skottinu
M-Sportfjöðrun
Cruise Control – Hraðastillir
Fjarlægjanlegur dráttarkrókur orginal frá BMW, tær snilld
Fjarstýrðar samlæsingar frá BMW með innbyggðri ræsitengdri þjófavörn


http://www.we-todd-did-racing.com/wetod ... NDE%3D.jpg

http://www.we-todd-did-racing.com/wetod ... NDE%3D.jpg

http://www.we-todd-did-racing.com/wetod ... NDE%3D.jpg

http://www.we-todd-did-racing.com/wetod ... NDE%3D.jpg

http://www.we-todd-did-racing.com/wetod ... NDE%3D.jpg
E34 525i ´92-með öllu
Primera 2.0eGt´92 4x4
User avatar
redman
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 20
Joined: Thu 05. Aug 2004 10:14
Location: Reykjavík

Postby redman » Tue 21. Dec 2004 08:38

Gullið er selt !!!!!!!!!!!!!!!!! Ég verð aldrei samur á ný
E34 525i ´92-með öllu
Primera 2.0eGt´92 4x4
User avatar
redman
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 20
Joined: Thu 05. Aug 2004 10:14
Location: Reykjavík

Previous

Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests