Langaði bara að deila þessu með einhverjum... ættum kannski að hafa svona "BMW sightings" þráð hérna.... og þó.
Ég get nú ekki talist sérstakur aðdándi útlitsins á nýju sexunni og varð því dálítið undrandi þegar ein slík kom lullandi eftir götunni þar sem ég stóð á ljósum áðan og beið (í München).
Það fyrsta sem ég sá var (eðlilega) framendinn og það var strax greinilegt að þarna var ekki venjuleg sexa á ferðinni því það var smá feluplast á svuntunni og bíllinn greinilega kraftalegri en venjuleg sexa. Sem betur fer var rautt á umferðarljósunum þannig að gaurinn þurfti að stoppa bílinn og ég gat aðeins skoðað á honum (bílnum) afturendann af smá færi.... og það var enginn smá afturendi! Fjögur púströr sem teygðu sig undan svuntunni - þau stærstu sem ég hef séð á standard BMW
Þessi stund hefði verið enn betri ef ég hefði heyrt meira í vélinni en það er svo sem ekki við því að búast í traffíkinni á föstudags eftirmiðdegi.
Það var hins vegar algjört !#"$"#!% að vera ekki með myndavélina en bílinn var hins vegar nákvæmlega eins og þessi hérna... sami litur, feluplast og alles.
Skemmtilegt hvað svona lítil atvik geta lífgað upp á skammdegið
