Ef að það eru allir svona góðir alltí einu að búa til logo, gjörið þið svo vel:
Quote:
BMWKraft vantar logo til að setja nafn sitt við. Nú gefst ykkur tækifæri á að hafa áhrif á útlit þess eða jafnvel fullhanna það.
Hugmyndum má skila í textaformi eða í mynd, og skal hún þá vera minnst í 300 punkta upplausn. Orðið BMWKraftur skal koma fyrir. Mælst er til þess að BMW litirnir séu allsráðandi, en þó má endilega koma með aðrar hugmyndir. Logoið má ekki að innihalda original BMW logoið!
Hver einstaklingur má skila eins mörgum hugmyndum og hann/hún vill. Hugmyndum skal skilað á netfangið
admins@bmwkraftur.comStjórn BMWKrafts áskilur sér rétt til að nota allar eða engar þær hugmyndir sem koma fram. Einnig gæti hluti af einni eða mörgum hugmyndum verið notaðir.
Sá sem kemur með bestu hugmyndina hlýtur nafnbótina logomeistari BMWKrafts.
Logoið sem Schnitzerinn sendi inn var ekki hægt að nota vegna þess
að það var alltof mikið detail í íslandskortinu og þar að leiðandi hentar
það ekki á prent, td. í húfur, boli, peysur eða fána. Einnig efast ég um
að hann hafi teiknað kortið sjálfur og þyrfti því að borga eiganda kortsins
einhverjar fúlgur fyrir að fá að nota það í logo.
Ástæðan fyrir því að það stendur ekki BMWKraftur á logoinu í horninu
er sú að okkur fannst ekki þurfa að hafa það vegna þess að við erum jú
á heimasíðu BMWKrafts þannig að fólk ætti að tengja þetta saman. Ef
við settum logoið okkar á fána eða boli myndi að sjálfsögðu standa
BMWKraftur undir.
En endilega sendið inn betri logo, sýnið snilli ykkar.