íbbi_ wrote:
hehe, já e38 er að mínu mati meira spennandi kostur en e32, að sjálfsögðu enda nýrri og þróaðari bíll, en ég verð nú samt að segja að mér finnst menn herna inni ekkert voðalega e32 sinnaðir

sem mér finnst hálf furðulegt því að mér finnst þetta alveg yndislegir bílar.. sama hvaða bíl ég keyri það er alltaf svo gott að koma aftur í bimman minn

finnst útlitið á þeim líka töff, hef oft verið að spá í að flytja mér inn eitthvað virkilega flott eintak.. hægt að fá lítið ekin late model 740 e32 á undir milljón..
en ég vildi að sjálfsögðu frekar e38 en e32, e32 er bara á svo hagstæðu verði, og varahlutir í þá ódýrir,
hvað er e38 stór? e32 er 4,91m á lengd og 184cm á breidd, og frá 1660kg þannig að get nú ekki ýmindað mér að e38 sé mikið meiri fleki..
Ég er mjög hrifinn af E32, aðallega eftir að hafa keyrt slíkann bíl. E38 er mjög góður líka en það er eitthvað sem heillar mig við gamla E32. Þetta eru gífurlega vel smíðaðir bílar og hægt að fá mjög ódýrt í þetta (svo framarlega sem hann er ekki V12) notað og nýtt. Þeir þurfa þó góðan lit, réttar felgur og hafa gífurlega gott af einskonar Alpina meðferð... s.s. góðru framsvuntu
Þetta er reyndar einn af bílunum sem ég hef verið að skoða með innflutning til DK í huga. ÉG hef síður en svo afskrifað svona bíl (735 þá) en er smeykur við eyðsluna... viðhald ætti þó að vera ódýrara en á mörgu öðru og þetta fer auðvitað MJÖG vel með mann sem langkeyrslu bíll en það eru einmitt fyrirhuguð not þar sem við hjólum bæði í skólann.
Ástæða þess að þetta er ekki fráleitt er sú að "afgift" skatturinn hér í DK sem er 180% almennt (miðast við markaðsverð bílsins í DK, er einskonar vítahringur) er alveg geysilega hagstæður á E32... skatturinn á góðann E32 735 er um 350 þúsund kall á meðan hann er um 700 þúsund á E30 325 Touring! Það má eyða slatta bensíni fyrir það...
Ef einhver hefur reynslu af langkeyrslu eyðslu á 735 þá mætti alveg láta það fylgja hér... og já 535 líka....
Já og svo kostar E32 SKÍT OG KANIL á mobbanum
