Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér E38 bílum og á árinu 1996 var skipt úr M60 vélinni yfir í M62 (er þá aðallega að tala um 740 týpuna). Eru einhverjir hér sem vita kosti/galla á þessum vélum?
Mér skilst á t.d. www.unixnerd.demon.co.uk/bmw.html að það hafi verið einhverjir gallar á eldri M60 vélum en ekki nýlegri, BMW skipti víst slatta af þessum vélum út, eitthvað tengt súlfúr í bensíni. M62 vélin er talsvert stærri að rúmtaki en með sömu hestaflatölu, torkar víst betur og á betri snúning. Samkvæmt www.parkers.co.uk eyðir M62 vélin aftur á móti mun meira en M60 svo það er spurning hvort ekki væri betra að reyna að ná sér í nýlegri M60 vél. Og þá er spurningin, hvernig er best að vita hvort í bíl sé nýrri M60 vélin eða eldri?
Er það bara B&L kannski sem geta grafið þetta upp?

