arnib wrote:Það að drifta í snjó getur verið ágætis æfing fyrir þann sem að hefur ekki hugmynd um hvernig bíll lætur í oversteer..
Það má samt ekki halda að ef maður geti oversteerað og leikið sér í hálku og snjó geti maður það líka og jafn auðveldlega í þurru.
Þegar maður er í þurru gerist allt svo ofboðslega mikið hraðar að ef að maður þekkir ekki réttu handtökin er auðvelt að klúðra!
Þess vegna held ég að það væri algjör snilld að við myndum reyna að hafa svona "ice-drifting" dæmi í vetur þegar það er snjór og hálka þar sem allir geta testað og leikið sér á svæði þar sem ekkert slæmt getur gerst (afmarka braut með keilum t.d.) og síðan seinna meir er hægt að leika sér meira á þurru.
Taka húsgagnahallarplanið í vetur undir það bara




