Kælingarmál

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Kælingarmál

Postby Jónas » Wed 10. Nov 2004 17:02

Hitamælirinn á það til að rokka upp og niður, helst lengi á miðjunni, fer í næsta strik, smá yfir það, svo aftur niður í miðju og svo upp og niður, virðist hitna pinkumeira ef það er gefið inn..

Lekur enginn kælivökvi og það er nýr vatnslás..

Einhver sem veit hvað gæti verið að?
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby Joolli » Wed 10. Nov 2004 17:10

Getur verið að viftukúplingin sé að fara? Eða er ekki viftukúpling í þessum bílum annars?
M. Benz E320 Sportline '94 Svart Metallic
M. Benz E420 '94 Vínrauður
BMW 530iA '94 Diamondschwarts Metallic - Seldur
BMW 525iA E34 '94 Orientblau Metallic - Seldur
M. Benz 220E W124 '93 Ljósgrár - Seldur
BMW 316i E30 '90 Gletscherblau Metallic - Seldur
User avatar
Joolli
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 457
Joined: Thu 03. Jun 2004 22:09
Location: Reykjavík

Postby Jónas » Wed 10. Nov 2004 17:15

Viftukúpling.. með enskt orðið yfir það?
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

.

Postby Wolf » Wed 10. Nov 2004 18:28

Hitamælarnir í þessum bílum eiga nú til að verða hálf klikkaðir með aldrinum....
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Postby arnib » Wed 10. Nov 2004 18:32

Jónas wrote:Viftukúpling.. með enskt orðið yfir það?


Fan Coupling, held ég.

Þetta er járn-"miðjan" í viftunni þinni.
Hún er skrúfuð upp á vélina með öfugum skrúfgangi í þeim tilgangi að hann herðist þegar vélin snýst.

Viftuspaðarnir eru síðan boltaðir á viftukúplinguna.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Jónas » Wed 10. Nov 2004 19:10

Ætti ég að skipta um hana?

Einhver leið til þess að athuga hvort hún sé slöpp?
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby arnib » Wed 10. Nov 2004 19:41

Já já.

Hafðu slökkt á bílnum, og prufaði að snúa viftunni með höndunum.

Hún á að streitast á móti snúningnum.
Það er erfitt að lýsa nákvæmlega hversu stíf kúplingin á að vera, en þú getur ímyndað þér að kúplingin sé full af sýrópi, svona.. þykk!

Ef að viftan þín snýst mjög auðveldlega í marga hringi þá er hún orðin slöpp og það þarf að skipta um hana.

Ég á erfitt með að lýsa þessu betur :)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby gunnar » Wed 10. Nov 2004 19:43

hehe sehr gut lýsing Árni :lol: 8)
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Jónas » Wed 10. Nov 2004 20:26

Var að koma úr um 25km ferðalagi, mælirinn bifaðist ekki frá miðjunni... ég held að hann sé á fyllerí... sumir byrja snemma..:roll:

Prófaði að snúa viftunni, hún tók ágætlega í
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby oskard » Wed 10. Nov 2004 20:28

líka hægt að troða td 1/2líters kókflösku í viftuna þegar bíllinn er í gangi, ef hún stoppar þá er hún ónýt :lol:
oskard
 

Postby Jónas » Wed 10. Nov 2004 20:30

Hehe, heeeeld að ég sleppi því :lol:
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby bjahja » Thu 11. Nov 2004 01:11

arnib wrote:
Jónas wrote:Viftukúpling.. með enskt orðið yfir það?


Fan Coupling, held ég.

Þetta er járn-"miðjan" í viftunni þinni.
Hún er skrúfuð upp á vélina með öfugum skrúfgangi í þeim tilgangi að hann herðist þegar vélin snýst.



Fan clutch
Last edited by bjahja on Fri 12. Nov 2004 00:06, edited 2 times in total.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby arnib » Thu 11. Nov 2004 15:03

Það er rétt að Fan Clutch er sennilega oftar notað, en ETK (BMW Partadiskurinn) kallar þetta Fan Coupling 8)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby jonthor » Fri 12. Nov 2004 11:54

Þetta er mjög líklega vandamálið hjá þér. Ég skipti um hana um daginn hjá mér, ekkert mál. Ég myndi hins vegar mæla með því að þú skiptir líka um vatnsdæluna nema þú sért fullviss um að það sé búið að því!
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby bubbi bmw » Fri 12. Nov 2004 12:36

Ég er líka í vandræðum með hitamælinn í 518 bílnum mínum, hann bara einfaldlega fer ekkert upp, þetta er ekki vatnslásinn og hann er sennilega ekki dottinn úr sambandi.

Þegar mig grunaði að viftukúplingin væri farin í bílnum mínum þá athugaði ég bara hvort ég gæti stoppað hana með höndinni, sem og ég gat og það þýddi semsagt að ég þurfti að skipta um.

Verra að vera með bæði bilaðan hitamæli og viftukúplingu
bubbi bmw
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Fri 12. Nov 2004 12:26

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 13 guests