Húsið opnar klukkan 18:00 og sýningin hefst klukkan 18:30. Húsið lokar svo klukkan 20:30
Léttar veitingar verða í boði (m.a. Öl og gos). Í ljósi þess vilja BMWkraftur og B&L mælast til þess að þeir sem hyggjast njóta áfengra veiga hugi að heimferð með öðrum hætti en að sitja undir stýri
Eins og fyrr segir þá er aðal tilefni sýningarinnar sýning á nýju 1-línunni. Gefst nú meðlimum BMWkrafts einstakt tækifæri til að koma á þessa sýningu og fá einkar góða kynningu á vagninum, ásamt góðum veitingum.
Einn fremsti tæknimaður B&L, hann Bjarki (sem margir muna eftir frá B&L deginum) mun standa í fararbroddi kynningarinnar. Bjarki ku vera mjög fróður maður um BMW bifreiðar og er meira en fús til að svara öllum þeim spurningum sem kunna að vakna!




