Er það ekki rétt munað að þessi 850i bíll hafi ílengst á landinu (og sé enn) en spurning hvað varð um Z1 bílinn. Var hann ekki örugglega sendur út aftur?
Datt þetta bara svona í hug þegar ég rakst á Z1 á vappinu á mobile.de. Það var alltaf einn grænn til sölu rétt hjá kunningja mínum í Sviss og var ég alltaf að reyna að telja konunni minni trú um að þetta væru funky bílar en hún skildi það bara ekki
Hvað sem öðru líður var hurðasýstemið í þessum bílum alveg magnað þó þessar upp-niður rennihurðir hafi ekki lifað áfram í nýrri gerðum. Hvernig væri að fá sondermodell af Z4 með svona hurðum?





