þórir wrote:
Já, þetta hefur maður nefnilega heyrt um BMW hjólin, enda segir það ansi mikið um þau að til sé stór klúbbur manna sem eiga hjól sem ekið hefur verið meira en milljón km.
Annars ætlaði ég nú alls ekki að fara að særa Ducatti crowdið en það er svo skrítið að þetta er bara í fyrsta skipti sem ég hef heyrt það nefnt að Ducati ( er þetta ekki rétt núna? ) séu áreiðanleg hjól, hvað bilanatíðni varðar. Ég hef nú lesið mér sitthvað til og þekki nú nokkra sem eru á kafi í þessu.
Annars er nú bara mín sýn á Ítalska bíla og mótorhjól sú að þetta sé ein fallegasta hönnum sem fyrirfinnist, 996 er tildæmis eitt það hjól sem mig langar hvað mest í, enda hönnunin svo ótrúlega flott, það bara bogar af því þokkinn. En áreiðanleiki virðist ekki vera til staðar og held ég að það sé erfitt fyrir menn að neita því, jafnvel þó þeir séu forfallnir aðdáendur. Ölfurnar eru nær óseljanleg vara, ekki bara vegna þess að umboðið var lélegt.
En svo er hins vegar annað mál að ég er sífellt að læra að meta BMW hjólahönnunina meir og meir. Það er ekki langt síðan mér fannst þetta ljótara en allt ljótt en nú er ég byrjaður að sjá fegurðina, ekki bara fegurð í notagildi heldur einnig ákveðinn sérviska sem fylgir hönnuninni. En svona er þetta, maður eldist og þroskast. Það eru nú bara ekkert langt síðan mér fannst old school racer-arnir, CB hondurnar, Triump o.s.frv. alveg hræðilega ljót hjól en núna finnst mér þetta alveg hrikalega svalt.
Annars ætlaði ég nú aðallega bara bjóða Bebecar að skanna inn kafla um þessi "slash 7" hjól eins og þeir kalla þau í buyers guide sem ég á og e-maila honum.
Annars, hafið það bara gott.
Kveðja.
Það væri ekki slæmt að fá buying guide yfir þessi hjól, ég er reyndar líka hrifinn af gömlu CB (sérstaklega CBX þó ég myndi ekki vilja halda því við), en aðal vandamálið hjá mér er kannski það að ég er líka mjög hrifinn af K hjólunum þá aðallega K100 og verðmunurinn á því og 100CS er mjög lítill. Mér finnst R hjólin bara klassískari (sem þau eru) og kannski öruggara að veðja á þau ef maður vill klassískt karakter hjól.
K hjólin eru víst geysilega góð en þykja dálítið "dull" í samanburði við R hjól.
Ég er líka byrjandi í þessu þó ég hafi lesið mér mjög mikið til síðustu ár þannig að öll góð ráð eru þegin.
En samt sem áður þá hafa þessi þrjú ítölsku hjól öll orð á sér í dag (síðan sirka 1996) fyrir að vera mjög traust og örugg, Moto Guzzi byggir t.d. á mjög traustri vél sem þeir eru búnir að nota í áratugi og þau eru með drifskafti líka
Alfan mín var bilanafríasti bíll sem ég hef átt, það fór ekki einu sinni pera í honum þessa 40 þús km sem ég keyrði hann... en hann bilaði sem aldrei fyrr hjá næsta eiganda hef ég heyrt - ég myndi ekki þora í Ölfu í dag nema ákveðnar típur, en ég þori t.d. heldur ekki að kaupa VW vegna slæmrar reynslu flestra þeirra sem ég þekki sem hafa átt Polo, Golf eða Passat
Ég held að málið sé bara það að þetta spyrjist minna út þegar þjónustan er góð, t.d. veit ég um ansi margar gallaðar Avensis bifreiðar og IS200 en þetta veit engin um vegna þess að umboðið sér um að halda fólki ánægðu.