Kominn tími á update, ég er búinn að gera hitt og þetta fyrir hann á þessu ári.
Byrjaði síðasta vetur á að kaupa vetrafelgur (Style 33
uppáhalds felgunar hans SRR 
) undir hann og tók gott bón session á hann, notaði Ecocoat Wax á hann sem er að mínu mati besta bón sem ég kynnst.

Keypti svo Facelift nýru á hann en tók þau svo af fljótlega, fannst þau ekki passa með Pre-facelift stuðra

Síðan fékk ég leið á hvað hann var alveg himinn hár þannig ég verslaði coilover undir hann og skellti því undir.


Rubbar alveg hressilega með 2 farþega aftur í

Þegar ég keypti bílinn ákvað að ég ætlaði ekki að setja M-Tech stuðara,
en þegar vinur bauð mér einn stuðara sem á hann átti á góðu verði ákvað ég að taka hann.
Þannig ég keypti önnur Facelift nýru og setti þau á sama tíma og ég setti stuðran á.

Svo verslaði ég að M-Tech afturstuðara með PDC, ætla mér einhvern tíman að retrofita svoleiðs í hann.

Lét samlita listana


Næstu plön hjá mér eru að þvo og bóna hann reglulega en annað kemur bara í ljós
