Víbrandi bremsupedall

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Víbrandi bremsupedall

Postby Jónas » Wed 02. Sep 2015 20:00

Sælir.

Er með 2008 Corollu sem er ekki frásögu færandi en bremsupedallinn er farinn að titra ansi hressilega þegar maður bremsar. Hefur verið að ágerast (nýlega byrjað)

Nýir diskar að aftan, diskar að framan virðast líta vel út og nóg eftir af klossum.

Enginn titringur í sæti né stýri þegar ég bremsa, sama hversu harkalega það er - ætti ekki að koma titringur í stýrið ef þetta væru diskarnir?

Gætu þetta verið stýrisendar eða annað tengt hjólabúnaði?

Kv
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Re: Víbrandi bremsupedall

Postby rockstone » Wed 02. Sep 2015 21:26

ef bara titringur í pedala ekki stýri getur það verið diskar að aftan, þó þeir séu nýlegir.
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: Víbrandi bremsupedall

Postby sosupabbi » Wed 02. Sep 2015 22:21

Oft sem að ódýrari diskar verpast á stuttum tíma, er ástandið á afturbremsonum gott að öðru leiti fyrir utan að diskarnir eru nýlegir? Getur líka rennt við á næstu skoðunarstöð, þeir geta séð flökktið á mælonum hjá sér, þá er hægt að sjá hvaða hjól o.þ.a.l hvaða diskur er að valda þessu.
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: Víbrandi bremsupedall

Postby Jónas » Thu 03. Sep 2015 07:48

rockstone wrote:ef bara titringur í pedala ekki stýri getur það verið diskar að aftan, þó þeir séu nýlegir.


Það væri nú frekar glatað - verslað í fyrra af AB

sosupabbi wrote:Oft sem að ódýrari diskar verpast á stuttum tíma, er ástandið á afturbremsonum gott að öðru leiti fyrir utan að diskarnir eru nýlegir? Getur líka rennt við á næstu skoðunarstöð, þeir geta séð flökktið á mælonum hjá sér, þá er hægt að sjá hvaða hjól o.þ.a.l hvaða diskur er að valda þessu.


Flott hugmynd, tékka á þessu í hádeginu.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Re: Víbrandi bremsupedall

Postby Jónas » Thu 03. Sep 2015 10:33

Snillingarnir í Tékklandi kíktu á þetta

Diskarnir að aftan eru varpaðir!

Ekki ánægður með endinguna á þessum diskum, voru keyptir nýir í mars 2014.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Re: Víbrandi bremsupedall

Postby rockstone » Thu 03. Sep 2015 12:14

Jónas wrote:Snillingarnir í Tékklandi kíktu á þetta

Diskarnir að aftan eru varpaðir!

Ekki ánægður með endinguna á þessum diskum, voru keyptir nýir í mars 2014.


Það þarf ekki mikið, til dæmis góða hemlun og beint í poll til að þeir skekkst.
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: Víbrandi bremsupedall

Postby Zed III » Thu 03. Sep 2015 14:40

Jónas wrote:Snillingarnir í Tékklandi kíktu á þetta

Diskarnir að aftan eru varpaðir!

Ekki ánægður með endinguna á þessum diskum, voru keyptir nýir í mars 2014.


Vissi ekki að skoðunnarstöðvarnar gætu skoðað þetta. Áhugavert.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Víbrandi bremsupedall

Postby Jónas » Thu 03. Sep 2015 20:21

Zed III wrote:
Jónas wrote:Snillingarnir í Tékklandi kíktu á þetta

Diskarnir að aftan eru varpaðir!

Ekki ánægður með endinguna á þessum diskum, voru keyptir nýir í mars 2014.


Vissi ekki að skoðunnarstöðvarnar gætu skoðað þetta. Áhugavert.


Það var rólegt hjá þeim í morgun og þeir kipptu honum inn á "bremsuprófarann" - gátu séð hvar vandamálið var (H/M aftan) þannig. Góð þjónusta :thup:
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 39 guests