Sælir.
Þarf að skipta um dempara að aftan í E39 530i sem ég á.
Mig langar pínulítið að nota mér tækifærið og aðstöðuna til að setja ögn stífari fjöðrun allan hringinn.
Með hverju mæla menn á þennan bíl? Þetta er ekki sport-útgáfan, eftir því sem ég best veit, svo hann er með standard fjöðrun. Sem mér finnst heldur bátaleg, miðað við performans á öðrum sviðum. Kannski væri málið að fá bara allt settið úr sport-útgáfunni?

