Fyrsta Umferð Íslandsmeistaramóts í Drift. Laugardaginn 23.

Hér skal ræða um allt efni tengt mótorsporti. Ef þú þarft að auglýsa leikdag, æfingu, keppni eða eitthvað slíkt gerðu það þá hér.

Fyrsta Umferð Íslandsmeistaramóts í Drift. Laugardaginn 23.

Postby siggigunni » Sun 10. May 2015 21:16

Fyrsta umferð Íslandsmeistarakeppni í Drifti fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg Laugardaginn 23. Maí.
Image
Keppni hefst kl 13:00 og það er FRÍTT inn fyrir áhorfendur.
Áhorfendur leggjið við áhorfendasvæði!, öll umferð um pitt eða braut er stranglega bönnuð!
Haldið ykkur við leyfileg áhorfendasvæði( þau eru merkt!)


Dagskrá:

09:00 Dómarar gefa út svæðið og æfingar hefjast.
12:00 Æfingum lýkur og hádgishlé hefst
13:00 Undankeppni hefst
14:00 Útsláttarkeppni hefst

Það er frjáls mæting fyrir keppendur á æfinguna, en þó þurfa þeir að vera mættir fyrir kl 12:00



Skráning er hafin.
Til að skrá sig þarf að senda mail á driftdeildaih@gmail.com


Í mailinu þarf að koma fram:

Nafn ökumanns:
Bílnúmer ökutækis:
Gerð ökutækis:
Símanúmer ökumanns:
símanúmer og nafn aðstandanda:

keppnisgjaldið eru litlar 4.000kr og leggjast þær inn á:
Rkn: 545-14-404231
Kt: 611002-2030
vinsamlegast sendið afrit á okkur.


Skráningu lýkur kl 23:59 þriðjudaginn 1. júlí.
allar skráningar eftir það verða ekki teknar gildar nema
keppnisgjaldi fylgi 5000kr "late-fee"

Til að keppa þarf eftirfarandi að vera í lagi!!:

Bíll með fulla skoðun, ef hann er með endurskoðun má ekki vera sett út á
öryggisatriði og við höfum fullan rétt á að vísa bílum frá í vafamálum.

Mæta með löglegan hjálm(þarf að vera þræddur)(hjálma reglur neðst.)
Mæta með ökuskírteini!(þetta er no brainer!)
vera félagi í einhverju af aðildarfélögum ÍSÍ (t.d. BA, DDA, RCA, KK)
Vera með Tryggingaviðauka*!
Vera með keppnisskírteini frá ÍSÍ

*Tryggingafélagið þitt gæti sagt þér að þú þurfir ekki viðauka, þetta er ekki satt og krefðu þá um að fá það skriflegt að þú þurfir hann ekki, annars skaltu krefja þá um viðauka. Hann er ekki fyrir bílinn þinn eða neitt svoleiðis heldur til þess að tryggja það tjón sem þú gætir valdið á fólki!. Hann er mjög mikilvægur!!!


Við vekjum athygli á því að kaupa þarf keppnisskírteini frá ÍSÍ

Það er greitt til okkar um leið og keppnisgjöld eru greidd og sjáum við um að sækja um þau fyrir ykkur!

Til að útskýra aðeins verðskránna þeirra:
Gjald fyrir hverja keppni (Falli keppni niður er gjaldið ekki endurgreitt) 2.000
Ungliðar að 18 ára aldri fá 50% afslátt 1.000
Alþjóðlegt keppnisskírteini 30.000
Homologation form FIA fyrir bifreið Samkvæmt verðlista FIA
Vottorð vegna innflutnings keppnisbifreiðar 20.000
Aðalskoðun ökutækis v. nýsmíði 20.000
Sérvalið keppnisnúmer 10.000

hjálma reglur:
Hjálmareglur:
Götubílaflokkur:
1. Hjálmar eru skylda.
2. Leifðir eru allir lokaðir hjálmar með gleri samkv.lið 4.
3. Opnir hjálmar helst með skyggni og gleri samkv. lið 4.
4. Verða vera lágmark Dot, ECE eða FIA SA,SAH og M,Snell, SFI,BS.
5. Motocrosshjálmar ekki leifðir.
6. Hér ráðleggjum við öllum að kaupa alvöru gerð keppnishjálma sem hægt er að nota áfram í annað bíla mótorsport .

Opin flokkur:
• Hjálmar skylda.
• Lokaðir hjálmar með gleri samkvæmt AKÍS/FIA stöðlum.
• Opnir hjálmar helst með skyggni/gleri samkvæmt AKÍS/FIA stöðlum.


Ef einhverjar spurningar koma upp er um að gera að spyrja hér á þræðinum, pm, á facebook, eða tölvupóst!

Driftdeildin: http://www.drift.is
Driftdeildin á facebook : https://www.facebook.com/pages/Driftdei ... 51?fref=ts
Kv. Sigurður Gunnar Sigurðsson
email: sigurdurgunnar92(att)gmail.com
fh. Driftdeildar AÍH
Last edited by siggigunni on Mon 18. May 2015 10:59, edited 1 time in total.
'06 mazda 3
'83 MB 190e 2.6 esab
stjórnarmeðlimur í drift deild AÍH
siggigunni
Kassabílstjóri
 
Posts: 102
Joined: Mon 01. Mar 2010 21:45

Re: Fyrsta Umferð Íslandsmeistaramóts í Drift. Laugardaginn

Postby Alpina » Sun 10. May 2015 23:42

Ef Driftdeildin hefur ekki haldið fund,, ((sem ég veit ekkert um ,, en má vel vera)) eða kynnt félögum eða auglýst,,

þá er fyrirvarinn full stuttur á td keppnisskirteini osfrv .. sá bara umræðuna um hjálmana um daginn

eða er ég að misskilja eitthvað hérna


en ég er sammála þessari hertu reglugerð :thup:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Fyrsta Umferð Íslandsmeistaramóts í Drift. Laugardaginn

Postby siggigunni » Sun 10. May 2015 23:53

Alpina wrote:Ef Driftdeildin hefur ekki haldið fund,, ((sem ég veit ekkert um ,, en má vel vera)) eða kynnt félögum eða auglýst,,

þá er fyrirvarinn full stuttur á td keppnisskirteini osfrv .. sá bara umræðuna um hjálmana um daginn

eða er ég að misskilja eitthvað hérna


en ég er sammála þessari hertu reglugerð :thup:


Driftdeildin hélt aðalfund 1. Nóvember síðast liðinn.
Keppnisskírteini AKÍS hafa verið notuð í nokkur ár og er þetta bara útskýring á verðskránni hjá þeim í póstinum, þ.e.a.s ætlað til að benda mönnum á hvað skal kaupa.
Ef ég skil spurninguna rétt :)
'06 mazda 3
'83 MB 190e 2.6 esab
stjórnarmeðlimur í drift deild AÍH
siggigunni
Kassabílstjóri
 
Posts: 102
Joined: Mon 01. Mar 2010 21:45

Re: Fyrsta Umferð Íslandsmeistaramóts í Drift. Laugardaginn

Postby Alpina » Sun 10. May 2015 23:58

ok,, en ef menn hafa ekki verið með á nótunum.. þá þarf að drífa sig.......... :wink:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Fyrsta Umferð Íslandsmeistaramóts í Drift. Laugardaginn

Postby fart » Tue 12. May 2015 07:08

Getur 550i ekki driftað?
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Fyrsta Umferð Íslandsmeistaramóts í Drift. Laugardaginn

Postby Tóti » Tue 12. May 2015 13:48

fart wrote:Getur 550i ekki driftað?


Er það ekki frekar spurning með eigandann?
E28 518i 1986
E28 518i 1986
E28 518i 1986
E30 318i 1986
ofl...
Tóti
Getawaybílstjóri
 
Posts: 881
Joined: Tue 29. Apr 2003 19:16

Re: Fyrsta Umferð Íslandsmeistaramóts í Drift. Laugardaginn

Postby Alpina » Thu 14. May 2015 15:23

Tóti wrote:
fart wrote:Getur 550i ekki driftað?


Er það ekki frekar spurning með eigandann
?


Ekki vafi,,,,,,,,

en til hvers að nauðga 550 i svona.......

fullt af hetjum sem eiga tíkur sem vert er nota frekar
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Fyrsta Umferð Íslandsmeistaramóts í Drift. Laugardaginn

Postby siggigunni » Mon 18. May 2015 10:59

ATH!!!
upp hefur komið smá misskilningur á greiðslu á keppnisskírteini AKÍS, það greiðist um leið og greitt er keppnisgjald til okkar og við sjáum svo um að sækja um það.
Afsakið þennan rugling!
kv.DDA
'06 mazda 3
'83 MB 190e 2.6 esab
stjórnarmeðlimur í drift deild AÍH
siggigunni
Kassabílstjóri
 
Posts: 102
Joined: Mon 01. Mar 2010 21:45


Return to Mótorsport

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests