by auðun » Tue 11. Nov 2014 17:34
það virðist alltaf koma loft inná kerfið. í hvert sinn sem ég bæti á hann svo þrýstingurinn stafar af því. en hvaðan kemur þetta loft. vatnslásinn ætti ekkert að tengjast því. .
lofttæmdi kerfið og setti í gang inní bílskúr. allt kerfið var stútfullt af vatni svo hann hefði átt að buna því útum tappann þegar þústoingurinn hækkaði en gerði það ekki virtist vera. neðri slangan hitnaði eftir 15 mín svo hann hleypir gegnum vatnslásinn. lét bílinn ganga í hálftíma inni á búkkum og aldrei dældi hann útaf tappanum samt búinn að skipta um tappa enda eyga þeir að halda við um 30 pund svo það er kannski ekkert óeðlilegt. þegar bíllinn hafði gengið í hálftíma var efri slangan orðin svo hörð að ég þurfti að beita tveim höndum til að kremja hana. eftir þetta drap ég á og lét hann kólna. athugaði stöðuna og þá hafði var komið loft á kerfið. þurfti að bæta sirka 2 dl.
þegar ég starta bílnum finnst mér hann reykja smá en samt bara lítið og mér fannst eins og reykurinn væri sætur á lyktinni en það hættir eftir að hann er orðinn heitur. ekkert vatn í olíu og engin olía í vatni.
einhverjar uppástungur.
E30 340i
E46 320
E46 330 imola A ELV