Giz wrote:
Skemmtilegar pælingar,
Færi ekki í Disco 3 né RR Sport, ekki af eigin reynslu heldur ráðleggingum mér mun fróðari mönnum.
Hef hinsvegar rúllað á FFRR, FullFatRR, í um ár, 2004 4.4 BMW V8 Vouge bíll, umboðs með alles, 2 fyrri eigendur etc…, og gæti ekki verið ánægðari. Þetta eyðir smá, innanbæjar góðir 20 en 11-13 utan. Sem vetrar- og ferðabíll er þetta dásamlegt tæki.
Gott í umgengni, bilerí fer eftir eintökum skilst mér og viðhaldi, eins og annað. Prufuðum Cayenne líka og fíluðum alls ekki, fíluðum X5 alls, alls ekki…
RR all the way! Allt fyrir pjéninginn.
Var BTW að spá í að öppgreida um daginn í 2008 Supercharged, en fannst á endanum eyðslan allt, alltof mikil, og tiltekið eintak þónokkuð verra en minn þó minna ekinn og þetta nýrri og fannst það þal alls ekki borga sig. Better the devil you know og allt það...
Takk fyrir þetta - mjög athyglisvert.
En þessar ráðleggingar sem þú fékkst varðandi Disco/RR Sport, var fólk þá að vara við kostnaði/viðhaldi eða hreinlega ekki að fíla bílinn? Ég man eftir því í gegnum tíðina að það hefur verið mjög móðins að basha RR Sport og Top Gear hafa m.a. úthúðað honum - en þegar maður fer að fletta upp gömlum reviews fyrir 2005-2013 bílinn þá eru þau almennt mjög jákvæð.