Keypti af honum þokuljós í E39, datt í hug að skipta um það á staðnum, spurði hann hvort hann ætti skrúfjárn og hann skipti um það fyrir mig.
Kom og hjálpaði mér með læsingu á miðnætti á virkum degi, reif hana úr fyrir mig og reddaði svo annari læsingu.
Læsingin var samt ekki vandamálið en það er önnur saga
Toppgaur, öll mín viðskipti og samskipti við hann hafa gengið eins og í sögu, og svo á hann þennan líka yndislega fallega E39!
