Hleðsluvandamál / M20B25 E30

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Hleðsluvandamál / M20B25 E30

Postby magnusbjarki » Wed 11. Jun 2014 08:45

Er að lenda í bölvuðu basli með bílinn minn svona korter í bíladaga!

Þannig er það að bíllinn heldur ekki hleðslu.
Það virkar að gefa honum start og einnig að ýta honum í gang, og þá virkar hann vel.
Ef það líða síðan nokkrir tímar á milli þá tapar hann allri hleðslu og neitar að fara í gang.

Ég er búin að prófa að skipta um alternator en það virðist ekki hafa breytt neinu.

Hleðsluljósið kemur og fer þegar að bíllinn er í gangi, og hraðamælir og eyðslumælir detta einnig út á köflum, en kicka svo aftur inn. Framljós og útvarp eiga til að detta út líka.

Geymirinn er umþabil eins og hálfsárs gamall.

Þetta vesen byrjaði þegar gleymdist að slökkva á ljósunum yfir heila nótt, og loguðu því stöðuljósin nokkuð lengi.

Öll svör vel þegin!

-Magnús
magnusbjarki
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 9
Joined: Fri 05. Jul 2013 01:44

Re: Hleðsluvandamál / M20B25 E30

Postby Hjalti123 » Wed 11. Jun 2014 09:30

Alveg pottþétt rafgeymirinn, prufaðu að mæla hann, eða fá annan í láni og prufa :)
BMW E39 523 97'
BMW E32 730iA 92'
User avatar
Hjalti123
Kassabílstjóri
 
Posts: 170
Joined: Mon 12. Aug 2013 23:35

Re: Hleðsluvandamál / M20B25 E30

Postby Eggert » Wed 11. Jun 2014 09:42

Á nýhlaðinn og fínan 77 amperstunda geymi fyrir þig fyrir lítið!
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Re: Hleðsluvandamál / M20B25 E30

Postby magnusbjarki » Wed 11. Jun 2014 13:50

Hjalti123 wrote:Alveg pottþétt rafgeymirinn, prufaðu að mæla hann, eða fá annan í láni og prufa :)


Já ætla að prófa að henda öðrum í núna seinnipartinn!
En er það ekki frekar óeðlilegt að 1 og hálfs árs geymir skuli vera ónýtur?

Bíllinn var reyndar í skítkaldri geymslu í vetur og þurfti að draga hann rúma tvo kílómetra til þess að
koma honum í gang eftir vistina. Var líka duglegur að gleyma ljósunum á þegar að ég var nýbúin að kaupa bílinn. :angel:

Gæti alveg verið að þetta síðasta skipti hafi endanlega gert útaf við hann ..
magnusbjarki
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 9
Joined: Fri 05. Jul 2013 01:44

Re: Hleðsluvandamál / M20B25 E30

Postby Eggert » Wed 11. Jun 2014 13:55

Hljómar þannig... þessir geymar þola mismikið og verða alltaf slappari eftir að verða rafmagnslausir. Þannig að aldur á rafgeymi segir ansi lítið.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Re: Hleðsluvandamál / M20B25 E30

Postby magnusbjarki » Thu 12. Jun 2014 11:49

Setti annan geymi í bílinn í gær, og hann virtist skána. Hleðsluljósið kom ekki og allt virtist virka.

Prófaði svo að starta bílnum kl hálf 8 í morgun, og hann fór í gang.

Fór síðan aftur í gang um hálf 12 leitið, en á leiðinni heim þá datt útvarpið út og hleðsluljósið kom aftur.

Prófaði að drepa á bílnum hérna heima og reyna að starta honum aftur, en það virkaði ekki..

Gæti verið eitthversskonar sambandsleysi frá alternator yfir í geymirinn eða hvað?

:aww:
magnusbjarki
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 9
Joined: Fri 05. Jul 2013 01:44

Re: Hleðsluvandamál / M20B25 E30

Postby Navigator » Fri 13. Jun 2014 21:43

giska á lélegt jarðsamband eða geymasambönd.
Jón Ingi
s. 692 1212
Navigator
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 52
Joined: Thu 28. Jul 2011 13:34


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests