BMW 318i '02

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

BMW 318i '02

Postby Hreiðar » Sat 12. Apr 2014 18:34

Keypti mér þennan bíl í gær, ágætis daily.

Þetta er umboðsbíll frá B&L en hann er voðalega hrár en er þó með einhverja aukahluti eins og:

M-tech II stuðari
Sport-aðgerðastýri með tökkum
Er á glænýjum lækkunargormum 60MM framan og 30MM aftan
CD-professional - með 6 diska magasíni í skotti
Hvít stefnuljós
Shadowline

Bíllinn er ekinn 150 þús. km og keyrir fínt, örugglega einhverjir hér sem þekkja þennan bíl, hann var á M-Parallel felgum en ég fékk þær ekki með honum. Er eins og er á mökkljótum felgum sem voru undir Z3 hjá mér, en ég ætla að finna mér einhverjar góðar fyrir sumarið.
Það er nýbúið að skipta um heddpakkningu á honum og það var gert hjá B&L.

Bíllinn er ekki gallalaus:

Gengur leiðinlega rétt eftir start, en þegar maður gefur honum aðeins inn þá gengur hann alveg eðlilega, skynjari sem er bilaður?
Þegar maður startar honum kemur olíulykt úr miðstöðinni. Vaccum dæmið?

Á eftir að kíkja á þetta betur eftir helgi.

Plön:

Nýjar felgur, ný framljós (angel eyes) og cornerljós að framan, kaupa litla bútinn sem vantar í framstuðarann, reyna að tengja relay þannig að kastararnir virka í stuðaranum (kemur orginal ekki með kastara), skottlip og rooflip, laga húddið svo það samsvari brettinu...svo bara eitthvað dund.

Image
Last edited by Hreiðar on Sat 12. Apr 2014 18:58, edited 1 time in total.
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Re: BMW 318i '02

Postby tolliii » Sat 12. Apr 2014 18:49

Flottur bara, verður mega clean eftir þessi plön. :)
Þorleifur Kristmundsson.
Sími: 8666558

Subaru Legacy 02'

Image

Hjartað slær bmw
User avatar
tolliii
Getawaybílstjóri
 
Posts: 681
Joined: Sat 04. Jul 2009 19:08

Re: BMW 318i '02

Postby GPE » Sat 12. Apr 2014 18:52

Alltaf finnuru einhverja flotta daily bíla! Þessi verður flottur hjá þér ;) Til hamingju með hann! ;) :thup:
Image
BMW e30 318is 89' Diamond Schwarz Metallic
BMW e46 318i 02' Daily Seldur
BMW e36 328i 95' Lemans Blue 17" Ac Schnitzer Seldur
BMW e34 525ix Touring 93' Seldur
BMW e46 318ci 00' Seldur
BMW e46 318i 00' Seldur
VW Golf GTI 99' Winterbeater! Seldur
User avatar
GPE
Getawaybílstjóri
 
Posts: 605
Joined: Wed 03. Jun 2009 00:57

Re: BMW 318i '02

Postby Hreiðar » Wed 11. Jun 2014 02:06

Er búinn að dunda mér í þessum nú undanfarinn mánuð. Búið að vera smá vesen á honum, lekur vaccumdælan og vélin lekur olíu hjá pönnupakkningu og olíusíuhúsi, kælivökvi er líka að hverfa. En ætla að reyna að koma þessu í gang, en langar helst bara í nýja vél :)
Fór með hann í skoðun en fékk endurskoðun útaf nokkrum hlutum en er búinn að laga nánast allt sem hann fékk athugasemdir á.

-Ný öndunarslanga í ventlalok
-Perustæði fyrir stefnuljós farþegamegin
-Nýir ballanstangarendar b/m að framan
-Dempari að aftan farþegamegin
-Nýr knastásskynjari
-Nýir bremsuklossar allan hringinn + skynjarar
-Nýir bremsudiskar b/m að aftan
-Handbremsa löguð, nýir borðar og gormar
-Nýtt framljós farþegamegin

Fín bæting á bílnum.

Eina sem ég þarf núna fyrir skoðun er númeraljós, og þarf að kaupa allan listann með því.
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Re: BMW 318i '02

Postby rockstone » Wed 11. Jun 2014 06:58

vel gert :thup: En já 4cyl N mótorarnir eru seint að gera sig, myndi frekar vera með m43 í þessu hehe.
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: BMW 318i '02

Postby íbbi_ » Wed 11. Jun 2014 08:52

leiðinlegt að heyra hvað mótorinn er með mikið ves. þessi bíll gékk eins klukka það ár sem að ég átti hann

ég held að það sé ekki rétt að það hafi verið skipt um heddpakninguna hjá B&L, held að þá verandi eigandi hafi gert það sjálfur, hann var allavega að óska eftir upplýsingum um hvernig maður tímar mótorinn á FB og lét að ég held setja hann á tíma hjá B&L
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: BMW 318i '02

Postby Hreiðar » Wed 11. Jun 2014 11:15

Já, ég talaði við BL stuttu eftir að ég keypti bílinn og þeir sögðu að eina sem þeir gerðu var að klára verkið, en þetta hafi verið illa gert. Það var greinilega svindlað á mér í þessum viðskiptum en hvað getur maður gert. Ég gerði þann feil að fara ekki með bílinn í ástandsskoðun. Hef reynt að tala við fyrrverandi eiganda án árangurs. Því miður fara hlutirnir stundum svona. :thdown:

En ég ætla að reyna mitt besta að gera þennan bíl virkilega góðan og hann er á góðri leið. Reyndar logaði EML ljósið í honum í gær og hann vill ekki fara í gang. :lol:
Ef þið vitið um einhverja sniðuga vél sem gæti farið í þennan og þyrfti ekki mikið að breyta bílnum fyrir hana, látið mig vita. :)
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10


Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 34 guests