íbbi_ wrote:
ég mætti með félaga mínum og keypti bíl af ungum strák á selfossi, þessi bíll stóð fyrir utan hjá honum og var búinn að vera stopp í einhvern tíma vegna gírveljararofa, bíllinn var alveg búinn að fá að finna harkalega fyrir því samt, hafði stokkið ágætis vegalengd og skemmt dekk og flr, var búið að fara í e-h æfingar með pústið á honum og mölva drifið í honum ásamt e-h flr,
verandi með veikan blett fyrir 540 þá mætti ég svo seinna og skoðaði 540 bílin, þá var pabbi hans með hann að eigin sögn, og var búinn að leggja töluverðan pening í hann,
seinna fer ég svo á eyrabakka/stokkseyri með félaga mínum sem kaupir hann allan skemmdan, þá var eigandinn mikið slasaður maður sem lá á heilsuhælinu á kumbaravogi. hann vildi nú mest lítið fullyrða sjálfur en á öðru fólki skyldist okkur að strákurinn sem við sáum hann fyrst hjá hefði aldrei borgað hann, og stuttu eftir að fyrri eigandi tók hann aftur þá var gengið á hann. félagi minn kaupir hann þarna og lagar hann helling til og kemur á götuna og selur aftur
Já þetta stemmir allt