E39 530d kraflaus

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E39 530d kraflaus

Postby eyjo77 » Mon 10. Feb 2014 12:52

Nú er svo komið að bíllinn er vita mátlaus fyrir ofan 1600rpm eða svo sem bendir á vant á forþjöppu blæstri. Þektur kvilli á þessum vélum að túrbínan gefi sig. Hvernig er það, ef keypt er ný túrbína, þarf að stilla hina nýju inn e-ð sérstaklega? Hvernig er best að komast að túrbínunni? Að neðan eða ofan frá?
Er einhversstaðar hægt að fá notaða túrbínu hérna heima eða mæla menn ekki með því?
Eðalbílar, eru þeir einu aðilarnir sem maður ætti að hleypa í viðgerðina af verkstæðum bæjarins?
eyjo77
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 21
Joined: Mon 01. Jun 2009 10:10

Re: E39 530d kraflaus

Postby eiddz » Mon 10. Feb 2014 14:10

Hvað er hann keyrður?

Myndi fara í eðalbíla og láta þá reyktesta, til að sjá hvort að sé ekki alveg örugglega allt þétt og engir lekar á intercooler eða pípum, annars held ég að þessar túrbínur séu að fara vanalega í kringum 150.000km
Kveðja, Eiður
8665409

BMW E30 325i '87 [FCKJDM]
BMW E30 300i '87

Image
eiddz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 956
Joined: Wed 07. Jun 2006 01:11

Re: E39 530d kraflaus

Postby eyjo77 » Mon 10. Feb 2014 17:25

Akkúrat, ætli túrbínan sé ad detta í um 150000 km eda svo. Ef ad skipta tharf um túrbínu, er thade-d sem madur getur skipt um sjálfur med gódum leidbeiningum?
eyjo77
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 21
Joined: Mon 01. Jun 2009 10:10

Re: E39 530d kraflaus

Postby Axel Jóhann » Tue 11. Feb 2014 16:50

Ef þú kannt að skrúfa sjálfur og ert vanur því þá já annars mæli ég með því að þú fáir þér aðstoðarmann.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: E39 530d kraflaus

Postby eyjo77 » Tue 25. Feb 2014 22:15

Best case scenario. Þegar ég tók hlífarnar undan gapti við mér vandamálið, hosan hafði lostnað frá intercooler niðri í svuntu svo það er ekki nema von að aflið vantaði. Best að byrja bara að safna fyrir worst case : )
eyjo77
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 21
Joined: Mon 01. Jun 2009 10:10

Re: E39 530d kraflaus

Postby bubbim3 » Thu 20. Mar 2014 23:00

Það stiflast mjög oft egr ventil þá verður hann mjög kraftlaus og sian sem er í venlalokinu
e34 m5
e36 m3
e46 320d
mustang 1969 390gt búinn að vera í uppgerð í 22 ár
yamaha r6
husaberg 450
bubbim3
Kassabílstjóri
 
Posts: 199
Joined: Wed 09. Sep 2009 16:14

Re: E39 530d kraflaus

Postby Raggi M5 » Fri 21. Mar 2014 13:55

Svo er líka lítil olíusía við turbínuna, hún gæti verið orðin smekkfull af drullu. Henntu henni.
Svo mæli ég með að þú látir taka blöðkurnar úr innspítingunni, það er mjög algengt að pinnarnir og festingarnar sem
halda þeim gefi sig og allt draslið fer inní.....með tilheyrandi leiðindun og kostnaði.

Ég rétt slapp við þetta hjá mér
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Re: E39 530d kraflaus

Postby Orri Þorkell » Sun 23. Mar 2014 08:44

held það sé hægt að auka endinguna á bínunni töluvert með því að bypass-a egr, halda oil separator síunni alltaf hreinni eða setja skilvindu úr E60. Minnir að samkvæmt manual eigi að skipta um hana í annað hvert skipti sem hann er smurður, eitthvað sem margar smurstöðvar hafa ekki hugmynd um. Sennilega sama sía og Raggi M5 er að tala um.
Svo líka bara ekki þenja neitt fyrr en allt er komið á eðlilegan hita og ef þú þenur hann mikið, að keyra boostlaus síðasta spölin til að kæla.

EGR = peningasóun frá upphafi til enda, bara til að spara örfá grömm af sóti sem endar bara á því að safnast upp í vélinni og minnka líftíma hennar
BMW 735i E32
Subaru 1800 Turbo Yoda
User avatar
Orri Þorkell
Getawaybílstjóri
 
Posts: 710
Joined: Wed 27. Sep 2006 22:15


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests