Komiði sæl,
Þar sem þessi þráður heitir "Off Topic", þá langaði mig aðeins að tjá mig hérna.. Ég fór í Nesradío núna um daginn til þess að versla mér hátalara, nánar tiltekið Alpine hátalara. Þegar ég kom inn í búðina þá svipaðist ég aðeins um og strax og ég kom inn í þessa búð fannst mér eitthvern veginn eins og ég væri bara ósýnilegur.. Ég fékk ekki aðstoð nærri því strax jafnvel þótt það væri enginn annar inn í búðinni nema ég.. Loksins kemur frekar roskin kona og talar við mig, spyr mig hvað mig vantar og þaðan af. Og ég segi henni að mig vanti 13 cm hátalara í sæta bimmann minn ( BMW E36 320ia ). Og hún spyr mig, hvernig bmw er þetta, og ég segi henni, bmw e36, en þá segir hún eins og ég sé gjörsamlega þroskaheftur, nei HVERNIG BMW!, er þetta 320 eða 325? Og ég tjái henni að það skipti nú sáralitlu máli þar sem boddíið á þessum bílum sé nákvæmlega það sama.. Skiptir ekki máli... Ég ákvað að láta ekki fara í taugarnar á mér að mér væri sinnt eins og litlu smábarni sem gekk inn í Herrafataverslun með 500 kall.. Ég spurði hana hvaða hátalara hún ætti til og hvort ég gæti fengið að heyra í eitthverjum. Hún kom með eitthverja hátalara af loftinu þarna hjá sér og sagði að þetta væri það sem væri til í augnarblikinu, ég var búinn að skoða mig aðeins um en þeir sem mér leyst best á voru ekki til. Þannig ég fór að spurja um fleirri hátalara og sagði að verð væri ekki neitt endilega fyrirstaða, og þá kom eitthver maður fram og lét mig hafa eitthverja 20.000 króna hátalara.. NEMA! kerlingin, sölukvendi djöfulsins sagði að ég kæmi þessu ALDREI í bílinn hjá mér.. Nú jæja.. hví ekki spurði ég.. Og þá tjáði hún mér að ég kynni ekkert að setja græjur í bíla? HVERNIG Í ÓSKÖPUNUM VEIT HÚN ÞAÐ? Svo kemur sonur þeirra þarna út held ég.. OG segist hafa nú sett 2x svona pör í akkúrat E36 bimma.. Nei nei hún segir bara við mig.. Þú kannt ekkert á þetta, taktu þessa ódýrari.. Ég hef aldrei áður gengið inn í svona búð áður.... Og eftir þessa reynslu verð ég bara að segja að ég get bara hreinlega ekki verslað við þessa búð þannig ef þið vitið um góða hljómtækjabúð sem selur góða 13 cm hátalara sem passa beint í BMW þá endilega bendið mér á hana..


