macosx wrote:vá hvað maður væri til í einn svona .. Til hamingju með þennan
Smá seinlegt svar en betra er seint en aldrei
Takk fyrir það
Angelic0- wrote:Must have: 3.15-3.45 LSD !!!
Sjáum fyrst til hvernig þetta endar
Annars er alveg sammála, LSD er must have!
En tími á smá update
Búinn að nota síðastliðið ár til að sanka hægt og rólega að mér einhverjum hlutum sem hefur vantað eins og td.:
-Frambita ásamt auka framstuðara og listum
-Húdd ásamt nýrum (prefacelift)
-Digital miðstöðvarunitið sem á að vera
-Afturgardínunni og takkaunitinu
-allskonar smotteríi.
Það helsta sem vantar er gólfteppið, ljósamódúll, stýrið, sætin og hurðarspjöldin. Ég á mestallt annað. Svo keypti brósi sér svartan e39 528iA sem winterbeater en því miður fór mótorinn í fokk svo að sá bíll stendur og verður að öllum líkindum partaður. Þaðan get ég fengið allskonar góðgæti eins og teppið, innréttingu, Euro skottlok, ljósamódúl, ljós ofl.
Nokkrar myndir.
Það kom að því að setja bílana í vetrargeymslu, þá þurfti ég að koma 540 niður af lóð og uppá kerru, við það ákváðu afturdekkin að breyta sér í muddera

Fékk bróðir minn til að keyra BIVIVV í samfloti niðrá geymsluplássið og stoppaði við niðrí vinnu til að smúla rykið, og mudderana, af bimmunum. Virkilega slæm mynd en það var ansi gaman að sjá hversu margir snéru sér við og gláptu á leiðinni í gegnum bæinn hehe

Svo var næsta ferð tekin með Supruna hjá brósa og hjólið inní bíl

Svo eitthvað varahlutastúss.
Var frekar kósý að koma húddinu inní Vito-inn, smellpassaði hehe

Svolítið annað að sjá bílinn "heilan" að utan aftur

3x e39 + Supra, ágætis floti hjá okkur bræðrunum þó ég segi sjálfur frá

Svo fer ansi mikill tími og peningur í stóru fjárfestinguna (húsið) þannig að bílarnir þurfa að sitja eitthvað á hakanum. Fengum þó ágætis innkeyrslu rétt fyrir sumarlok. Kommúnan stoppaði því miður verkið vegna pappírsvesens svo að við verðum að bíða fram á næsta sumar með að klára að grafa fyrir innkeyrslunni og bílskúrnum en eins og er komast ca. 10 bílar í innkeyrsluna án þess að þjappa þeim eitthvað svaka.

"Góðir hlutir gerast hægt!"

