Alveg á mörkunum að birta þetta.
Svakalegt.
http://www.visir.is/island-i-dag-fretta ... 4140109387
Edit:
http://www.liveleak.com/view?i=0c6_1389025127

Yellow wrote:Alveg ömurlegt að fjölmiðlar séu að birta þetta.
Þeir mættu hugsa sinn gang áður en þeir gera.

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
srr wrote:Ég er nú alveg sammála þér að þetta á ekki að birtast í fjölmiðlum.
En ég er einnig þeirrar skoðunar að þetta helst áfram í umræðunni og er áfram birt (þ.m.t. videoið á síðunni sem þú linkar í)
á meðan þessu er postað hingað og þangað annað á netinu
Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið

gardara wrote:Ekkert að því að birta þetta, verður vonandi víti til varnaðar.

saemi wrote:gardara wrote:Ekkert að því að birta þetta, verður vonandi víti til varnaðar.
Óhöpp gerast hvað sem gert er. Það er hægt að setja reglur um allt og ekkert, banna allt og á endanum verður lífið eins og þurrt franskbrauð, snautt af öllu því sem kryddar og gefur ánægju.
Viltu þá meina að það eigi að birta myndir af bílslysum í þeim tilgangi að það sé öðrum víti til varnaðar?
Það er hægt að banna einkabáta, þar hafa gerst hörmuleg slys. Það ætti að banna akstursíþróttir, fallhlífarstökk, köfun, einkaflug, jeppamennsku, fjallaklifur, .. hvar á að enda? Þetta voru einfaldlega skelfileg mistök. Sá sem gerði þetta fór vissulega út fyrir ramma þann sem honum var sniðinn samkvæmt reglum. Hann lét lífið í kjölfarið og þar með dó allt tal um öll ábyrgð sömuleiðis fyrir mér. Það vita allir sem þekkja eitthvað til þessa hvernig í pottinn liggur og ég sé ekki nokkurn einasta göfugan tilgang í því að rifja þetta upp.
Ég er persónluega ekkert á móti því að þetta myndband sé sýnt. En birting þess mun ekki gera heiminn að betri stað í mínum huga. Það er bara sorglegt að horfa á það og það mun ekki bæta neitt.

saemi wrote:Nú þekki ég ekki staðreyndir málsins. Er málið eins og Fart segir, að fjölskyldan sé að reyna að sækja bætur eða að fá að vita hvort þetta varð af völdum bilunar eða gáleysi? Ég tel að það hljóti að vera fyrsta skref að bíða eftir að Skýrsla Rannsóknarnefndarinnar komi út. Ég hefði skilið þessi viðbrögð ef hún væri komin út og í henni væru atriði sem eru röng eða að vantaði.
Án þess að ég þekki þetta mál til hlítar, þá ætti að vera þannig um hnútana búið að viðkomandi ættingjar flugmannsins sem lést í slysinu fái bætur óháð öllu öðru. Allir flugrekendur þurfa að tryggja flugmenn sína og aðstandendur fá trygginguna greidda. Ég veit ekki um sjúkraflutningamanninn, hvernig þeirra málum er háttað.
Það er reynt að draga upp dökka mynd á kostnað þess að þarna hafi verið um sjúkraflug að ræða og á vegum Ríkisins. Þessi flugvél var búin að sinna sjúkrafluginu og var á leið til baka til síns útkallsstaðs. Það er því á gráu svæði með að segja hvort þessi auka- hringur sem átti að fljúga hafi verið atvinnuflug eða skemmtiflug. Ríkið borgar fast gjald á ferðina og því lendir enginn auka kostnaður á skattgreiðendum við það þó að auka hringur sé floginn.
Ég er ekkert þeirrar skoðunar að það megi ekki tala um þetta atvik, að það sé eitthvað tabú likt og Óskar ///M er að vísa til hér að framan. Það sem ég var að benda á er að mér finnst að öll umræða um refsingu / ábyrgð og slíkt sé ekki til neins. Sá sem ber alla sök á þessu og gerði þessi mistök er látinn og að mínu mati tilgangslaust að velta því upp hvað hann gerði rangt. Það sjá allir og vita, ef kafað er ofan í málið, að viðkomandi flugmaður braut reglur og gerði mistök. Því miður urðu þessi mistök til þess sem sést á myndskeiðinu. Hvað meira á að gera eða segja?
Almannahagsmunir mæla með birtingu myndbands
Fréttastofa 365 telur að brýnir almannahagsmunir mæli með birtingu myndbands af flugslysinu af nokkrum ástæðum. Í fyrsta lagi verði að upplýsa um nákvæmlega hvað gerðist þegar TF-MYX brotlenti við Hlíðarfjallsveg til að draga af því lærdóm. Í öðru lagi er rannsóknarnefnd samgönguslysa opinber nefnd sem fjármögnuð er með skattfé. Í þriðja lagi annast fyrirtækið Mýflug sjúkraflug á grundvelli opinbers samnings að undangengnu útboði. Kostnaður vegna sjúkraflugsins á grundvelli þessa samnings greiðist úr ríkissjóði.
Fréttastofan telur að umfjöllun um flugslysið við Hlíðarfjallsveg sé innlegg í umræðu um rannsókn á flugslysum á Íslandi og starfsháttum þeirra sem annast sjúkraflug á grundvelli opinbers samnings. Af þessum sökum eigi birting myndbandsins og önnur umfjöllun um málið brýnt erindi við almenning.
Angelic0- wrote:Skýrslan er komin út

saemi wrote:Það sjá allir og vita, ef kafað er ofan í málið, að viðkomandi flugmaður braut reglur og gerði mistök. Því miður urðu þessi mistök til þess sem sést á myndskeiðinu. Hvað meira á að gera eða segja?
Users browsing this forum: No registered users and 9 guests