Sezar wrote:Man líka vel eftir Out Run kassanum.
Hvað ertu þá kominn með marga kassa drengur?
Held að þetta séu orðin 31 stk, myndi segja að rúmlega helmingur séu flottir kassar.
Hinn helmingurinn þarfnast tlc. Er loksins kominn með aðstöðu og er að sanka þessu saman, sem er svolítil vinna eitt og sér.
Vonandi sanka ég að mér þekkingu í arcade kössum, er að gjóa augunum að raspberry pi og setja upp MAME í þá, veturinn mun leiða þetta í ljós. Þó eru nokkrir kassar sem verða orginal og gerðir upp þannig. En með nýjum "decals" og allt það.
Ég kem til með að selja einhverja frá mér, datt í hug að setja þá jafnóðum á bilauppbod.is








