Sælir.
Er með e38 sem er að valda mér vandræðum. Ég var að keyra hann, stoppa fyrir utan eitt hús og stekk inn með hann í gangi. Þegar ég kem aftur, þá er hann búinn að kveikja hleðsluljósið í mælaborðinu. Eftir smá athugun, ákveð ég að keyra af stað og sjá hvort það slökkni.
Þá kemst ég að því að bíllinn skiptir sér ekki upp úr fyrsta gír. Ég stöðva því bílinn, og drep á honum. Eftir það startar hann sér ekki.
Í mælaborðinu sýnir hann eins og bíllinn sé í Drive, sama hvar stöngin er höfð.
Er þetta stöðunemi fyrir stöngina eða hvað haldið þið að sé að angra bílinn?



