BMW 520i E28 - Ekinn 136.000 <SELDUR>

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

BMW 520i E28 - Ekinn 136.000 <SELDUR>

Postby Schulii » Thu 07. Nov 2013 14:19

TIL SÖLU:

BMW 520i E28
Árgerð 1987
Ekinn 136.000 km.
Sjálfskiptur


Ég er að auglýsa þennan bíl fyrir vinkonu mína. Hún er sjálf búin að eiga hann síðan 2002 og afi hennar og amma í mjög langan tíma þar á undan. Hún er sennilega þriðji eigandi að bílnum.
Eins og sést þá er hann ekinn aðeins 136.000 kílómetra. Hann er auðvitað 26 ára gamall og það sést vissulega. Ég gæti hinsvegar trúað því að þetta sé góður efniviður fyrir eitthvað project.
Það fylgir smurbók frá upphafi.

Það er eitthvað að bílnum sem gerir hann ill gangfærann. Það gæti verið að það vanti bara einfaldlega sjálfskiptivökva á hann. Ég skoðaði engin forðabúr eða neitt slíkt en það er ekkert mál að fá að líta á gripinn og skoða betur.

Eigandinn vill einfaldlega losna við hann eins og hann er og fæst hann á
120.000kr.
eins og hann er.

Þið getið haft samband við mig með einkapósti eða hringt í síma 868-0027 sem er hjá eigandanum ef þið viljið fá tækifæri til að líta á bílinn.

Myndir teknar 06.11.2013:
http://www.flickr.com/photos/95576356@N07/
Last edited by Schulii on Fri 08. Nov 2013 00:08, edited 1 time in total.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000

Postby Jón Ragnar » Thu 07. Nov 2013 14:41

Þetta lookar merkilega vel miðað við aldur :shock:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000

Postby rockstone » Thu 07. Nov 2013 14:45

Jón Ragnar wrote:Þetta lookar merkilega vel miðað við aldur :shock:


held hann verði ekki lengi að seljast þessi :thup:
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000

Postby srr » Thu 07. Nov 2013 16:34

Ég verð nú að gagnrýna söluna á þessum bíl aðeins.

Það er búið að bjóða eigandanum 120.000 kr. í pening strax, en þá er svarað:
"Það eru svo margir búnir að hringja að ég ætla hringja í þá aftur og bjóða þeim að bjóða meira"

:roll:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000

Postby Schulii » Thu 07. Nov 2013 16:42

srr wrote:Ég verð nú að gagnrýna söluna á þessum bíl aðeins.

Það er búið að bjóða eigandanum 120.000 kr. í pening strax, en þá er svarað:
"Það eru svo margir búnir að hringja að ég ætla hringja í þá aftur og bjóða þeim að bjóða meira"

:roll:


Ég er ekki viss um að þetta hafi verið orðrétt svona en hinsvegar er þetta réttmæt gagnrýni. Ég ætla að heyra í henni og tala við hana um þetta.
Hún getur auðvitað hætt við söluna en ég ætla að benda henni á hvernig málum hefur verið háttað á þessari síðu og að menn geti reiknað með að bjóði þeir uppsett verð ætti salan að ganga í gegn.

Kem með update á stöðu mála mjög fljótlega.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000

Postby Schulii » Thu 07. Nov 2013 17:40

Málið leyst og bíllinn líklega seldur :thup:
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík


Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 51 guests