Öll hjálp mjög vel þegin, þar sem þetta varðar skólabílinn minn.
ég er með '00 E46 318i, og hann er bilaður.
Það lýsir sér svona:
Það logaði alltaf ljósið fyrir kælivökvann á bílnum, og svo fann ég að það míglak úr honum.
Svo eftir að hafa bætt á hann nokkrum sinnum og allt lak af, þá athuguðum við málið en fundum ekkert og hertum tappan bara betur.
Þá fór þetta í smá tíma, svo kom ljósið aftur á en ekkert lak né neitt, svo ég pældi ekkert meira í því. (Heimskulegt, þegar ég hugsa til baka)
Nú var ég á leið í skóla á morgun, og þá snögghitnar bíllinn eftir svona 7-10 min akstur og ofhitnar, svo ég legg honum og leyfi að kólna í smástund og bæti svo á vatnskassann, en það munaði engu, hann keyrði bara í svona 5 min í viðbót og ofhitnaði aftur.
Þá skildi ég hann bara eftir og sótti núna áðan, og sagan endurtók sig, keyrði áleiðis heim, en þurfti að stoppa til að leyfa honum að kólna.
Hvað gæti verið að? Hvar á ég að leita að leka?
Fyrirfram þakkir,
Emil




