Kannast einhver við það að þegar vélarhljóðið í 3.5 ltr verður svolítið gróft og það er farið að tikka svolítið í vélinni þá sé alveg upplagt að skipta yfir á ELF olíu. Allaveganna þangað til maður tekur mótorinn í gegn.
Það er að vísu ekki búið að keyra þennan mótor "nema" 190.000 góða kílómetra. Er eitthvað töfrabragð til að þagga niður í þessari elsku???
Svo er annað, kælivatnið á það til að gufa upp, að vísu rosalega hægt og rólega, án þess þó að maður verði var við nokkurn einasta leka.
Þetta er búið að vera svona í 7 ár án þess að aukast nokkuð.
