by srr » Wed 16. Oct 2013 22:28
Jökull wrote:srr wrote:http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/10/16/hirti_nanast_allt_ur_bifreidinni/
mbl.is wrote:Hirti nánast allt úr bifreiðinni
Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt með því að rífa hluti, m.a. gírkassa, vél, aftursæti og ljós, og selja hlutina eða ráðstafa þeim á annan hátt. Hann var jafnframt dæmdur brot á umferðarlögum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærði manninn í 10. september sl. fyrir fjárdrátt með því að hafa á tímabilinu 31. ágúst 2009 til 29. september 2011, dregið sér og slegið eign sinni á gírkassa og vél, ásamt öðru því sem henni tengist. Ennfremur jafnvægisstangarenda að aftan, rúðuþurrkumótor, aftursæti, mótök fyrir bílbelti að framan, miðjustokk í mælaborð, takka til að opna skott og bensínlúgu, hægra og vinstra frambretti, framstuðara, hægra og vinstra framljós, hægri og vinstri afturljós og vindskeið á skottlok sem allt kom úr einni og sömu bifreiðinni, sem var í eigu Avant hf.
Maðurinn hafði umráð yfir bifreiðinni samkvæmt kaupleigusamningi. Í ákærunni var honum gefið að sök að rífa hlutina úr bifreiðinni og selja eða ráðstafa á annan hátt úr henni með þeim afleiðingum að bifreiðin var metin á 75.000 kr. þegar eigandi hennar fékk umráð yfir henni aftur sem svo leiddi til þess að tjón hans var metið á um tvær milljónir kr.
Önnu ákæra var gefin út á hendur manninum 17. september, en þá var hann ákærður fyrir umferðarlagabrot í Reykjavík. Honum var gefið að sök að hafa ekið bifreið í marsl sl. sviptur ökurétti uns lögregla stöðvaði aksturinn.
Fram kemur í dómi héraðsdóms, að maðurinn hafi játað brot sín skýlaust. Maðurinn er fæddur árið 1988. Hann hefur tvisvar sinnum gert sátt við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu fyrir þjófnað og brot á umferðarlögum og einu sinni verið dæmdur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Og dómurinn hér:
http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/ ... l=1&Words=
Efast um að þetta sé sami bíll sem þarna um ræðir....

Nei enda bara að vísa í umræðuna um "þjófnað" af lánabílum.
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d