Ég lendi alltaf í veseni þegar ég keyri upp götuna mína á veturna. Hún er aldrei mokuð, liggur í brekku og halla og fólk kann ekki að leggja. Búinn að eiga 2x E46, 1x E39 M5 og 1x Z4. Sá síðasti er án efa sá besti, enda situr maður nánast á afturdekkjunum.

Góð dekk eru aðalatriðið. Menn lofa LSD í allar áttir, en mín reynsla af því var ekkert merkileg og var það einfaldlega stórhættulegt í hálku (léttar beygjur urðu að 360° allt of auðveldlega).