Er búinn að vera lenda í því undanfarið að eftir einhvern smá akstur finn ég brunalykt úr miðstöðinni, ekki svona eins og venjulegur eldur heldur frekar svona eins og eitthvað rafmagnsleikfang að bræða úr sér eða ofhitna, svolítið eins og rusl-plast að bráðna. Lyktin kemur alveg handahófskennt, hef ekki fylgst nógu vel með því hvað ég er að gera en gæti þó tengt það við að vera að keyra á 60-80 götum, svo kemur rautt ljós og ég bremsa úr svona 80-90 á stuttum tíma, er samt ekkert að negla niður.. þori samt ekki að segja að þetta komi bara þegar ég geri það.
Lyktin kemur í svona hálfa mínútu, á svona 2-3 daga fresti, búið að vera svona í 2-3 vikur og lyktin verður alltaf sterkari..
Veit einhver hvað gæti orsakað þetta?
þetta er 2002 318i

