Tolla bíl sem er á erlendum númerum

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Tolla bíl sem er á erlendum númerum

Postby Henbjon » Mon 12. Aug 2013 14:40

Sælir félagar, er flókið að tolla bíl sem er á erlendum númerum hérna á klakanum? Sem dæmi getum við sagt að bíllinn sé í minni eigu erlendis, ég sé að flytja heim til íslands og hafi leyst hann út úr höfninni á erlendu númerunum til að byrja með. Þarf ég ekki að tilkynna líka til útlanda að bíllinn sé nú á íslandi og ekki lengur á erlendu númerunum, jafnvel senda plöturnar út?

Kær kveðja
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Re: Tolla bíl sem er á erlendum númerum

Postby JBV » Tue 13. Aug 2013 14:03

Þú þarft að hafa samband við tollinn hér og Samgöngustofu. Þeir hjá tollinum sjá um að reikna út fyrir þig aðfluttningsgjöldin og rukka. Samgöngustofa sér um að úthluta númeri á bílinn, þú þarft einnig að panta númeraplöturnar í gegn um þá. Þegar bíllinn er tollaður og númerinn eru tilbúin til afhendingar, þá ferðu á næstu skoðunarstöð (þangað sem númerin hafa verið send) og bíllinn er skoðaður, útlendu númerin tekin af og íslensk sett í staðin. Skoðunarstöðin sér svo um að senda erlendu númeraplöturnar til Samgöngustofu. Samgöngustofa sér um að senda plöturnar til síns heima og afskrá bílinn í viðkomandi landi.
Jón Birgir
Mercedes-Benz C124 230CE '91
Renault Mégane II Sport Tourer '04
BMW E39 520i '99 (seldur)
BMW E28 518 '82 (seldur)
BMW GT
JBV
Kassabílstjóri
 
Posts: 116
Joined: Sun 21. Nov 2004 01:04
Location: Kópavogshreppi

Re: Tolla bíl sem er á erlendum númerum

Postby Henbjon » Wed 14. Aug 2013 13:22

JBV wrote:Þú þarft að hafa samband við tollinn hér og Samgöngustofu. Þeir hjá tollinum sjá um að reikna út fyrir þig aðfluttningsgjöldin og rukka. Samgöngustofa sér um að úthluta númeri á bílinn, þú þarft einnig að panta númeraplöturnar í gegn um þá. Þegar bíllinn er tollaður og númerinn eru tilbúin til afhendingar, þá ferðu á næstu skoðunarstöð (þangað sem númerin hafa verið send) og bíllinn er skoðaður, útlendu númerin tekin af og íslensk sett í staðin. Skoðunarstöðin sér svo um að senda erlendu númeraplöturnar til Samgöngustofu. Samgöngustofa sér um að senda plöturnar til síns heima og afskrá bílinn í viðkomandi landi.


Takk fyrir þetta :).

Kveðja
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests