Sælir.
Ég hef tekið eftir því að undanförnu að mér finnst talsvert meiri bræla aftan úr bílnum og hann virðist orðið brenna svona 2 lítrum af olíu á milli smurninga. (hvergi neitt smit og bíllinn átti þetta ekki til áður.)
Hélt á tímabili að súrefnisskynjararnir væru að valda þessu, þar sem villa kom á þá í aflestri.
Báðir eru þeir nýjir núna og bíllinn villulaus við aflestur.
Renndi áðan uppí Eðalbíla til að bera þetta undir þá.
Hann benti mér á að líklega væri þetta tengt öndunarmembrunni fyrir heddið og sagði of mikið sog á mótornum í hægagangi.
Það er reyndar ekki mjög langt síðan ég skipti um öndunarmembruna.
Kannistt þið við að hafa lent í sambærilegum vandamálum í tengslum við að skipta úr M52 soggrein yfir í M50 soggrein ?


