ömmudriver wrote:Frábært að heyra með dynobekkinn, ég sjálfur vildi óska þess að það væri til áreiðanlegur dynobekkur hér heima sem hægt væri að komast í með bílinn.
En með rifnu hosurnar; sástu á þeim hvort að þær væru búnar að vera svona í eitthvern tíma eða rifnuðu þær bara í síðasta rönni?
Nei það er erfitt að átta sig á því, miðað við Logga sem ég á voru þær í lagi síðasta vetur/fyrir áramót. En eftir að ég setti saman núna síðast voru þær rifnar, líklega eitthvað rifnar allavega. Það sem mér finnst líklegast er að þetta hafi rifnað þegar ég setti saman aftur eftir að ég málaði Plenium. Málið er að gúmíið er orðið gamalt og hart/brothætt. Mögulega skerast klemmurnar inn í þetta þegar maður er sífellt að rífa loftinntakið af mótornum og setja það á aftur.
Ég geri mér allavega von um að geta auðveldlega náð aftur 1.2bar boosti við 3.600rpm, sem verður áhugavert þar sem að ég var að ná max 0.8 núna og það við 5500rpm


