Það má vera að þetta hafi verið fínn náungi og átt unga, sæta og ferska konu.
EN, miðað við aksturinn þá var þetta eiginilega skársta niðurstaðan. Þessi náungi hefði aldrei hætt nema það hefði orðið alvarlegt slys.
Þetta gat ekki endað öðruvísi en með ósköpum.
Einhver sem heldur því fram að þessi maður hafi verið aksturssnillingur er á villigötum.
Aksturssnillingar vita hvar og hvenær maður getur leikið sér, það að vera góður ökumaður snýst ekki bara um það að geta slædað bíl.
Að keyra svona inni í miðri borg með gangandi vegfarendur, á móti umferð og slíkt gat bara enda á einn þann veg að hann myndi drepa einhvern, datt bara ekki í hug að það yrði náunginn sjálfur.






