Danni wrote:rockstone wrote:Danni wrote:Kemur mér nú nokkuð á óvart að þetta sé MANN sía sem er verið að prófa þarna í myndbandinu, sérstaklega þar sem að ég hef keypt olíusíu í umboðinu og fengið MANN síu þar. Get að vísu engan vegin munað hvort hún var í BMW kassa eða ekki.
Síðan er MANN síur gerðar í Þýskalandi en í myndbandinu þar sem eru sýndar myndirnar á tölvuskjánnum af efninu úr síunum stækkað þá heitir myndin með lélegu síunni "Nr. 4554 Filter aus China 250x.tif". Miðað við það er ekki verið að sýna MANN síu á þeirri mynd.
Ég hef notað bæði MANN og FRAM síur á mína BMW-a og hef séð svona dæmi gerast á FRAM síunum en ekki MANN síunum.
Bergsteinn, hvað var búið að keyra mikið á þessari síu/síum sem myndirnar eru af?
Ég man það ekki nákvæmlega, en þetta var innan marka á þjónustutíma.
Innan marka miðað við viðurkennda olíu og síu af BMW eða miðað við smurstöðvar olíu og síu?
Miðað við staðla frá BMW


