Hella Dark komið í öðru megin, fæ hinn helminginn um helgina ásamt xenon í lága geislan og þokuljósin, smurði skiptinguna áðan, skipti reyndar ekki um síu en það var gert í fyrra, svo verður skverað um helgina og vonandi man maður eftir þessari djöfulsins myndavél

Planið var að fara í bremsurnar complett allan hringinn en það bíður til næstu mánaðarmóta enda nóg eftir af þeim, þær eru bara gamlar.
En listinn fyrir helgina er einhvernveginn svona:
Hjólalegur að framan
Vatnslás
Olíuöndun(Vonandi er hún til í BL)
Olía á drifið 75w140LSD
Fíniseríngar í mælaborði
Hauspúði fyrir afturfarþega hægramegin
Rafgeymir(Vonandi báðir rafgeymar nýir, annars bara stóri)
Stilling á afturfjöðrun með þyngd í bílnum
Laga marr í afturhillunni(Laus hátalarafesting)
Reimar og reimahjól
Vonandi klárast þetta um helgina, þá er bara hjólastilling og þrif eftir og þá er þessi tilbúinn fyrir bíladaga
