Er með E36 318i sem hraðamælirinn virkar ekki í.
Ég hélt að þetta væri bara auðvelt, aftengdur skynjari í drifið. En fór undir bílinn áðan og kíkti á þetta og skynjarinn er tengdur og það er hvergi sjáanlegar skemmdir á vírunum.
Hvað gæti þá verið að? Mælaborðið?
Það hefur verið skipt um mælaborð einhverntímann í þessum bíl. Fletti honum upp og hann var ekinn um 150þús í einni skoðun og síðan 6þús í næstu skoðun ári seinna. Mælaborðið sýnir núna 52þús en ég hef ekki hugmynd um hvenær hraðamælirinn hætti að virka og þar af leiðandi teljarinn að telja.

