*Tilboð* BMW E46 2002 árg -Engin skipti- SELDUR *má eyða*

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

*Tilboð* BMW E46 2002 árg -Engin skipti- SELDUR *má eyða*

Postby slufsi » Sat 27. Apr 2013 11:39

Ásett verð 990.000, nú 850 þús!!!

Einstaklega fallegt eintak af bíl á ótrúlegu verði.

Var að skipta um membru í bílnum (vinna og aukahlutir uppá amk. 120.000 kr.) Þetta var gert af Eðalbílum föstudaginn 3. maí og mánudaginn 6. maí.

Einnig fóru þeir vel yfir hann og virkar allt vel í honum núna, þ.e. allir cylindar eru að kikka inn á réttum tíma, Uppfærðu tölvuheilann, hertu á handbremsu, hreinsuðu vélartölvuna og margt fleira.

Nýmassaður af AutoSpa (myndin inní bílakjallaranum sýnir hann eftir mössun).

Skoðaður 2014 (Hefur aldrei fengið endurskoðunarmiða á sig)

Einnig er ég nýbúinn að setja nýjan súrefnisskynjara (oxygen sensors) í púströrið (Eðalbílar sáu um það, kostaði um 50 þúsund). Einnig búinn að skipta um rúðuþurrkur og smyrjann fyrir 20 þúsund krónur ( í 190.000 km).

Um gripinn;
BMW E46 318i
Bensín
1,995cc
143 hö. (+AC Schnitzer)
Akstur 194.xxx
Árgerð 2002 (skráður á Íslandi um miðbik 2005)

Beinskipting
Afturhjóladrif
5 manna
Aksturstölva
18“ M5 Replica Sumardekk
16 “ Vetrardekk (nagladekk sem eru á síðasta snúning og slitnum álfelgum)
Fjarstýrðar samlæsingar
Geislaspilari + tengi fyrir iPod (AUX)
Útvarp
Höfuðpúðar aftan
Rafdrifnar rúður (í framsæti)
Rafdrifnir speglar
Armpúði
Stafrænt mælaborð
AC Schnitzer (auka aflgjafi/innspýting)
Air Conditioner
Angel Eyes
Xenon Ljós
Bakkskynjarar
Smurbók
Spólvörn
Neon ljós hjá bremsugjöf (on / off takki)
Dökkar rúður (filmur)

Fyrri Bifreiðargjöld hafa verið greidd (seinni koma í lok júní að mig minnir)

Bíllinn var keyrður í Þýskalandi til ársins 2005 og hefur alla tíð verið smurður reglulega og með gott viðhald (sjá smurbók). Oft er sagt að bíllinn (vélin) byrji ekki að telja fyrr en eftir 60 þús km þegar bíll er keyrður reglulega á hraðbrautum þannig að vélin er mun vel með farnari heldur ef hún hefði verið keyrð alla þessa kílómetra einungis á Íslandi.

Fyrsta skráning (í Þýskalandi): 04.02.2002
Nýskráning (á Íslandi): 13.05.2005

Smurbók í fullkomnu lagi og kvittanir fyrir öllum stórvægilegum viðgerðum til staðar.

Sendið mér skilaboð hérna inná eða á slufsi99@gmail.com

Bakkskynjararnir eru 4 talsins. Við skoðun um daginn kom í ljós að tveir þeirra voru bilaðir og þarf að skipta út. Þar sem að þetta er ekkert það allra nauðsynlegasta ákvað ég að sleppa því (hvert stykki kostar um 35 þús hjá umboðinu).

Myndir hér; https://bland.is/classified/entry.aspx? ... Id=1700164

mbk,
Björgvin Þór
Last edited by slufsi on Sun 23. Jun 2013 21:40, edited 2 times in total.
slufsi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 12
Joined: Sat 09. Feb 2013 18:40

Re: BMW E46 *Nýyfirfarinn hjá Eðalbílum fyrir 150 þús* Djók

Postby slufsi » Sun 19. May 2013 18:59

upp
slufsi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 12
Joined: Sat 09. Feb 2013 18:40

Re: BMW E46 *Nýyfirfarinn hjá Eðalbílum fyrir 150 þús* Djók

Postby thorsteinarg » Mon 20. May 2013 05:34

Seldu mér felgurnar :D
E36 COUPÉ 325 93' M50B25
User avatar
thorsteinarg
Getawaybílstjóri
 
Posts: 646
Joined: Sun 20. Jan 2013 23:06
Location: HFJ

Re: *Tilboð* BMW E46 2002 árg -Engin skipti-

Postby slufsi » Mon 17. Jun 2013 20:17

upp
slufsi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 12
Joined: Sat 09. Feb 2013 18:40


Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 34 guests