hverju sem því líður þá er nú bara gott að þeir hafi gengið frá þessu, bíllinn var alveg í stöppu og "mildi" að það kom ekki eitthvað allt annað út úr þessu.
ég verð nú að segja að ég hef séð E39 orðið lenda í ótrúlegustu hlutum og fólk ift sloppið furðu vel, þótt ég muni eftir banaslysi líka.
hvað 540 bílinn varðar þá verður þetta alltaf einhver besti bíll sem ég hef átt, ég tók þessa mynd haustið 07 þá var hann 5 ára og ekinn 95 (07.2002)
ástandið á þessu var bara út í hött í góðri merkingu þess, tala nú ekki um m.v almennt ástand E39 í dag. bíllinn var bókstaflega eins og nýr í útliti að innan sem utan og ofan og neðan og keyrði bókstaflega eins og nýr bíll. hann hrekkti mig nú samt alveg reglulega þótt ég ætti hann stutt, framsætið fór ellt í einu fram og stýrið nánast alveg upp og svo var það bara stopp þar. forðabúrið í honum sprakk á ljósunum í bankastræti og sprautaði gufu og kælivökva útum allt og á labbandi fólk nánast

áður en ég eignaðist hann var ég með e-h allt aðrar hugmyndir um hvernig E39 átti að vera en eftir að ég átti þennan vill ég helst hafa þá bara nákvæmlega eins og þessi var.