odinn88 wrote:Ég er að spá í að fara að versla mér reiðhjól og langar svakalega mikið i racer hvaða hjóli mynduð þið mæla með sem er svona best fyrir peninginn ætla helst ekki að fara yfir 100 þús kallinn
einnig þá rakst ég á þetta hjól alveg mega flott hjól með allt of háan verðmiða hehehe
http://orninn.is/Vorur/Reidhjol/Racer/Trek_Madone_7.9_58cm_H1/
Þú færð ekki nýjan racer á 100k en ef þú hefur augun opin getur þú fundið ágætan notaðan racer á þessu verði. Reyndu samt að finna þér racer með a.m.k. Tiagra Shimano grúppu ef þú ert að skoða hjól með Shimano búnaði. Hef hjólað mikið með mönnum með Sora búnað og það er endalaust bras á þeim.
Ef þetta verður þitt eina hjól þá myndi ég skoða hybrid/dual sport hjól og eiga bara nokkur dekk já eða cyclocross en þau er reyndar enn fjandi dýr. Myndi fyrst kíkja í Markið, Scott hjólin eru yfirleitt vel búin miðað við verð án þess að það bitni á gæðum.






