srr wrote:
Pics or it didnt happen

Skal sjá til hvort að ég get bjargað myndum, veit samt aldrei hvenær blessaður maðurinn er heima hjá sér þar sem að hann vinnur í Jeddah í Saudi....
Ég ætlaði alltaf að redda myndum af þessu, en fór aldrei í það þar sem að það er ekki í forgangi hjá mér að vera að bjarga e'h myndum af bílum, inni í skúr.... hjá mönnum sem að ég þekki ekki neitt...
Ég man ekki einusinni hvað maðurinn heitir, var bara að rúnta þarna og rak augun í bílinn fyrir utan bílskúr með húddið opið og fannst liturinn mega fancy...
Við spjall kemur svo í ljós að hann er að vinna með frænda mínum í Jeddah svo að þeir þekkjast eflaust, en mér finnst orðið frekar langsótt að fara að vera að hringja út um allan bæ að reyna að redda þessum myndum...
Ég tek kannski rúnt til þess að fá að taka myndir, annars skal ég ná heimilisfanginu þarna og ef að þið eruð svo sjúklega brjálaðir í að fá að sjá bílinn eða myndir væri eflaust best að þið græjuðuð það sjálfir...
Skúli er nú samt með aðgang að ökutækjaskrá ef að ég man rétt... hlýtur að geta fundið bílinn útfrá partial VIN, það eina sem að ég veit um hann er að hann hefur ekki verið settur á númer lengi (man ekki hvað lengi)
Maðurinn sagði 328i og að bíllinn verði aldrei falur, besti bíll í heimi blabla...