Hvað löglegu uppskrift?Geirinn wrote:saemi wrote:///MR HUNG wrote:Endilega fræddu okkur um hvernig í andskotanum það sé ekki í lagi að færa skráningu yfir í annað eins boddýDanni wrote:Hvernig sem því er háttað, sama hversu oft það hefur verið gert og hversu "allt í lagi" fólki finnst það vera, þá er ólöglegt að keyra um með skráningu sem kom upprunalega af öðrum bíl. Skiptir engu hversu vel það var staðið að því eða hversu löglega eða ólöglega maður eignaðist báðar skráningarnar, þá er þetta hreint og beint skjalafals og ekkert minna en það!
En það er ekkert tekið á þessu og þess vegna, eins og Íslendingar gera best, er þetta misnotað svo mikið að fólki er farið að finnast bara allt í lagi og ekkert mál að færa skráningar á milli villt og galið.
Ég er ekki að setja út á að þetta er gert. Ef fólk vill taka áhættuna á lögbroti, þá er mér sama svo lengi sem það bitnar ekki á einhverjum öðrum. En að halda því fram að það sé bara ekkert að því að færa skráningar á milli bíla í sumum tilfellum, er hrein og bein fásinna!
*Ég er ekki að tala um neitt sérstakt tilfelli. Ég er að tala um þetta almennt.
Uuuuuuu ég skal gera það.
Það er ekki í lagi að færa skráningu yfir á annað boddí ef þú ert að gera það til að svindla á kerfinu.
Frædd þú okkur endilega í staðinn um það í hvaða tilfelli það er nauðsynlegt að nota aðra skráningu en á að vera á viðkomandi bíl!
Sæmi segir meira og minna það sem ég vildi sagt hafa.
Það er ýmislegt í þessu sem er verra en gjörðin sjálf, t.a.m. ef þessir bílar eru svo seldir án þess að sagan fylgi, tala nú ekki um ef verið er að gera tjónabíla "tjónlausa" með þessum aðgerðum. Ég get ekki ímyndað mér að þetta sé í lagi, en hins vegar væri fróðlegt að fá að vita "löglegu uppskriftina" að þessu, aldrei að vita nema maður geti orðið ríkur.
Getur þú bent mér á hvar það stendur að þétta sé ólöglegt?
Og ef þetta er ólöglegt þá eru ansi margir tugir ef ekki hundruðir bíla ólöglegir hér á landi


