X-drive er frábært, ekki síst í E60. Er með E60 Touring 530xi árg 2006 með X-drive. Ótrúlega skemmtilegur og snar bíll, sama kram og í X5 en lægri þyngdarpunktur, mun léttari, snarpari og liggur eins og "klessa" á vegi. Hef samanburðinn hér á heimilinu þar sem ég á líka X5 E70 með X-drive 2007. Svo er aftursætið í Touring mun betra en í X5. Reyndar er 530xi bíllinn til sölu (og sýnis) þessa dagana uppi í Bílahöll hjá Jóni Ragnarssyni. Fann þessa skemmtilegu lesningu um X-drive úr Car and Driver og hvað Wagon (Touring) hefur fram yfir SUV:
http://www.caranddriver.com/reviews/bmw ... -road-test
Svo er hér söluauglýsingin f. 530xi á netinu:
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1




