Alpina wrote:
Angelic0- wrote:
Alpina wrote:
Þessi maður hlýtur að vera draumur allra herdeilda,, gjörsamlega ódrepanlegur,,
án gríns,, en ..
Viktor og Bartek aka NÁKVÆMLEGA svona.. og það er ekki orði ofaukið

Alveg rólegur....
Þessi maður metur aðstæður akkúrat EKKERT, og ber enga virðingu fyrir lífi né velferð annara...
Þú sérð mig ALDREI velja mér svona staði fyrir e'h fíflalæti, ALDREI í svona traffík t.d. eða í kringum gangandi vegfarendur...Þetta er BARA ruglað, maður bara hálf vonar að hann slasi sig eða stúti þessum blessaða bíl þegar að maður er að horfa á þetta mynband, og eins hitt...
Árekstrarsaga þín og slysa-ferlið er einmitt þess eðlis að svona er staðan,,
shit happens á ekkert skilt við þetta
Árekstrarsaga ???
ertu þá að tala um þau 3 skipti sem að ég hef tjónað bíl og verið í órétti... ?
eða þá þau 3 skipti sem að ég hef lánað bíl og lánstakinn hefur eyðilagt eða klesst bíl fyrir mér ?
eða þá þegar að starfsmaður N1 við hafnargötu lokaði ekki hjá mér húddinu með þeim afleiðingum að það fauk upp þegar að ég keyrði út af planinu ?
varla ertu að tala um þegar að ég var FARÞEGI í E39 530d sem að breyttist í flugvél á reykjanesbraut ???
og enn ólíklegra þykir mér að þú sért að tala um þau skipti sem að bílarnir mínir hafa verið lyklaðir eða rispaðir...
Ekki láta svona fásinnu vitleysu út úr þér Sveinbjörn... án þess að vita um hvað þú ert að tala !!!
2 af 3 tjónum sem að ég var valdur að höfðu ekkert að gera með akstursmáta minn, enda eins og ég hef tekið fram... þá vel ég mér stað og stund...
hérna eru þau tjón sem að ég hef verið valdur að;
E39 523i, vetur/vor 2006, farþegi í bílnum var sofandi áfengisdauða... vaknar í hringtorgi og grípur í stýrið hjá mér með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði á ljósastaur!
E38 740i, sumar/haust 2008, stöðvaði á gatnamótum, bíllinn fyrir framan mig tekur af stað og um leið hringir síminn, ég lít niður og falast eftir símanum, þegar að ég er að taka símann upp finn ég dynk og þá keyrði ég aftan á bílinn fyrir framan mig!
E39 535i, árshátíð BMWkrafts 2010, ég skutlaði þér heim, á leiðinni til baka lenti ég í aquaplaning þegar að ég og Bartek vorum að gunna, bíll á akrein fyrir framan mig sem að ég sveigði frá og vegna afturdekkja sem að voru í mjög döpru ástandi var engin von um að ná stjórn á bílnum aftur, endaði á vegriði og var það alfarið mín sök.
Þetta er náttúrulega allt vegna þess hversu gígatískur ökudólgur ég er....
Þú ert gjörsamlega að tala með rassgatinu !!!