Komið sælir.
Mig langar að byrja á því að þakka góða mótökur á nýasta tölublaði Mótor & Sport og mynna á að blaðið er ókeypis.
Þá langar mig að biðjast velvirðingar á ritvillum sem eru í blaðinu, en það vill margt fara fram hjá manni þegar maður er búinn að lesa þetta yfir meira en 20 sinnum.
Hvað varðar myndir þá raðaði undirritaður þeim inn í greinina og reyndi að hafa þær eins nákvæmar og ég best gat og kunni.
Sumar myndirnar eru fengnar hjá "BMW Press Club" og var ég mjög hissa á skorti á myndum af "M" bílunum hjá þeim.
Ég hef hins vegar þá stefnu að birta myndir af bílum sem til eru hér heima með svona greinum, áður en ég fer að fá myndir erlendis frá.
Mig langar líka að þakka ykkur fyrir þær myndir sem ég fékk sendar og ég mun öruglega birta eitthvað af þeim í næstu tölublöðum eftir því sem við á.
Það er búið að dreifa blaðinu á allar Shell og Olís stöðvar á höfuðborgarsvæðinu, á suðurnesjum, Akureyri og á Egilsstöðum og nágrenni.
Þá sendi ég blaðið á Olís og Shell (Orkan) stöðvar úti á landi í gær og blaðið fer austur í dag.
Þá er hægt að fá blaðið á flestum bílasölu í umboðum, í Bílanaust og Stillingu og öðrum varahlutaverslunum.
Blaðið liggur líka frammi í Kosti, Bónus Smáratorgi, og Nóatúni í Hamraborg. (er að semja um frekari dreifingu).
Ef þið vitið um fleiri staði sem ég get komið blaðinu á og/eða þið getið komið blaðinu á fyrir mig, þá er það vel þegið þar sem dreifing er dýr og blaðið er ekki selt.
Ef þið einhverra hluta vegna getið ekki nálgast blaðið, endilega sendi mér póst og ég skal reyna að senda blaðið.
Þá eru allar hugmyndir um efni í blaðið vel þegnar.
Það er hægt að koma hugmyndum á:
halfdan@motorogsport.is eða
motorogsport@motorogsport.isHlakka til að heyra frá ykkur.
Með bestu kveðju.
Hálfdán Sigurjónsson.